Vaknaði seint - las uppí rúmi - aulaðist framúr og við mæðgur fengum okkur hádegismat. Fórum í göngutúr út í Leikbæ og keyptum afmælisgjöf fyrir Huldu Karen. Heim í bað og rukum svo allt of seinar í afmæli. Þar var stútfullt útúr dyrum, brjálað fjör. Spjallaði við Fríðu og Helgu meðan Karlotta lék sér með krökkunum. Svo var haldið heim á leið og svo farið beint aftur í partý til Björgvins og Ernu. Fengum geggjaða kjötsúpu og svo var kjúklingur með frönskum í boði líka - eftirrétturinn var eins mikið nammi og fólk gat í sig troðið. Spiluðum Scene it spilið - DVD spil um bíómyndir, ferlega skemmtilegt. Sérstaklega því við BH burstuðum hin þrjú liðin og tvö þeirra voru með spjöld til að stoppa okkur af, en voru alltaf að geyma þau til betri tíma - þokkalega sem þau voru spæld er við lentum beint á lokareitnum og gátum svarað spurningunni sem að okkur var rétt - Yeb - minns reddaði því aldrei þessu vant. Svo sátum við allt kvöldið og spiluðum spurningarnar og klippur úr bíómyndum og reyndum að svara án þess að vera eitthvað endilega að spila - bara skemmtilegra.
Alla vega lærði ekkert í dag - þ.e. ekkert fyrir skólann. Reyni að bæta úr því á morgun - eða alla vega fyrri partinn - spá í að bjóða Freyju í heimsókn í kaffi, hún er á landinu núna, fer heim á mánudagsmorgun. Þá býð ég líka ömmu og Svandísi og ma og pa - spurning hvort ég læri nokkuð þá heldur - ætli ég verði ekki eitthvað að þrífa! Kemur í ljós!
Gnótt

Ummæli