Þreytt eftir helgina - gerði samt ekkert að viti. Sit við að læra - græja ritgerð um þróun stjórnarskrárinnar - umræður um hana og breytingar - þ.e. Gefa breytingar á stjórnarskránni, og umræður um breytingar á henni hugmyndir á þróun í íslensku þjóðfélagi? Þar hafið þið það - ef einhver er með góðar hugmyndir um þetta mál þá eru þær vel þegnar, já eða lesefni til að koma mér áfram :o). Annars gengur mér ágætlega - bara mikil vinna og mikið að lesa, svo endalaust pússl að koma þessu saman á gáfulegan hátt.
Búin með framsöguna sem ég flyt í næstu viku, svo á ég eftir að skrifa nokkrar blaðsíður um Lúðvík XVI.
Frí í Lágafellsskóla á morgun, starfsdagur kennara, líka á miðvikudaginn, foreldraviðtöl. Það er nú eins gott að það sé frí, púff krakkarnir uppgefnir bara því Vetrarfríið var fyrir þremur vikum síðan - það má nú ekki ofbjóða þeim. Annars er mér slétt sama um þessi frí, hef alltaf náð að redda mér með lítilli fyrirhöfn. Finnst helst fúlt þegar kemur að sumrinu hversu lengi skólinn er fram í Júní - þeir dagar nýtast aldrei í neitt gáfulegt hvort sem er og allir orðnir langþreyttir að sitja inni í góðu veðri.
Best að halda áfram að skoða skrif Gunnars G. Schram um endurskoðun stjórnarskrárinnar 1977. Verð fegin þegar ég get lokað þessum bókum og skilað - lyktin úr þessum gömlu bókum af hlöðunni er ekki sem best - spurning um að ná sér í nefklemmu stundum. Það toppar þó ekkert bækurnar sem ég notaði í ritgerðinni um píramídana í Mannkynssögu I - Crying outloud - það lyktaði öll endemis stofan hérna í 3 vikur. Þrátt fyrir blóð, svita og tár í ritgerðasmíðum þá er maður alltaf jafn kátur þegar verkinu er lokið og maður getur skilað afrakstrinum, þannig að nú er bara að ljúka þessu um stjórnarskránna og koma því frá mér.
Bókaormur

Ummæli