Brotist inn í hesthús hjá Svandísi síðustu nótt. Stolið hnökkum og beislum og alls konar meira sem ég kann ekki að nefna. Tjónið fyrir hana sennilega um 200 þúsund. Brotist inn í næsta hús líka - og nóttina þar áður í tvö hús í Víðidalnum. Vona að þetta finnist allt saman - hennar dót er meira og minna merkt og ætti því að þekkjast aftur. Verst að hestarnir eru ekki góðir varðhundar - hefðu þá getið bitið í rassgatið á þessum aumingjum, best ef stykki hefði farið úr bara.
Hver hefur áhuga á að kaupa svona þýfi, fólk kannski áttar sig ekki á þessu - eða vill ekkert vita. Þið vitið alla vega ef einhver býður ykkur hnakk á góðu verði - extra góðu verði - að minnast þess að innbrotafaraldur hefur verið í hesthúsin í Reykjavík og kannski víðar.
Það verður spennandi að vita hvort VÍS bæti henni tjónið því eins og landsmenn fá að heyra á hverju kvöldi þá færðu það bætt ef þú ert tryggður. Það kemur vonandi í ljós eftir helgi - sjáum til og vonum það besta. (Best ef kvikindin myndu detta dauð niður og þýfið allt finnast - smá fúl)
Later

Ummæli