Fara í aðalinnihald

Knows me too well...

Við hjónin höfum MSN opið alla daga og skiptumst á athugasemdum eða minnum hvort annað á eða spjöllum o.s.frv.

Í gær fékk ég link inn á tónleika þar sem Nelson og Kristofferson voru að syngja lagið "Loving her was easier" og með fylgdu skilaboð um að hann ætlaði kannski bara að taka Kristofferson á þetta. Og að ég ætti að hlusta á textann :o/

Já sko nei kemur ekki til mála karlinn, þú ferð bara í klippingu og verður snöggur að því. Þýðir ekkert að finna einhvern afdala kántrísöngvara sem er loðinn og þykja það töff því hann nennir ekki í klippingu, huh. Sem sagt ekki tekið mark á þessu.

Seinna atriðið er erfiðara - hlusta á textann. Ég er haldin athyglisbrest á háu stigi þegar kemur að textum í tónlist. Sorry en ég er bara svo takmörkuð að ég held ekki einbeitningunni, þetta veit minn heitelskaði eiginmaður mjög vel, og lagið var rúmlega FIMM mínútur. Púff - það var komið kvöld og ég eiginlega að glápa á sjónvarpið en eftir góða stund þegar ég var ekki að horfa mikið ákvað ég að spila lagið og hlusta á textann. Hmmm já held að ég hafi heyrt fyrstu tvær laglínurnar... já örugglega sko en þá var athyglin komin eitthvert allt annað... sjónvarpið, krakkarnir og bara horfa á karlana (sem ekki voru spennó) í myndbandinu. Og það voru ennþá fimm mínútur eftir og rúmlega það.

eftir að hafa þraukað í þrjár mínútur, með hugann við annað, þá fór ég að spóla áfram, nennti ekki svona sólónóló á einhvern gítar og svona. Endaði þannig að ég slaufaði þessu og slökkti - fannst textinn ekki beint höfða til mín anyways!

Er BH var kominn heim úr vinnu og ég hætt að prjóna og glápa á sjónvarpið fórum við inn að bursta tennur - tveir vaskar klárlega málið, enginn fyrir neinum og ekki þarf að skyrpa í kross. Hann spurði mig hvort ekki væri bara málið að taka Kristofferson á þetta, þar sem ég hafði ekki svarað á MSN fyrr um kvöldið.

LBK: Nei nei þú bara ferð í klippingu á morgun
BH: hmm já
LBK: Annars förum við ekkert á Argentínu með liðinu í jólahlaðborð - þú verður bara heima.
BH: hmm ok - klipping á morgun. En hlustaðir þú á textann?
LBK: Já hvað var það, nennti því eiginlega ekki en reyndi nú samt... Þú veist að ég er með athyglisbrest á háu stigi þegar kemur að tónlist...
BH: he he já ég veit, var líka bara að stríða þér, varð að láta þetta fylgja, langaði bara að fá svona villt look eins og Kristofferson...

Krakkarnir mínir eru heppin að hafa ekki erft þessa fötlun mína - þau þurfa ekki að heyra lag nema einu sinni eða tvisvar og þá eru þau nánast komin með það á hreint. Ljóð og svona, þau læra þetta á nokkrum mínútum og hafa lítið fyrir því... Límheilar :o)

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...