Fór um daginn og flýtti fyrir smákökubakstri með Lilju, fór svo í dag og bakaði Sörur með Lilju og Imbu. MMM Söööörur, nú þarf ég bara að vera duglegri en hinir í fjölskyldunni að næla mér í eina og eina svo ég fái eitthvað :o) Lagkökurnar voru bakaðar í lok nóvember og við erum búin að smjatta á þeim síðan og þær klikka ekki frekar en fyrri aðventur.
Ég er hæstánægð með að við mæðgur fundum jólakjól fyrir KBB um helgina. Kjól sem við báðar vorum ánægðar með, það gerist nú ekki alltaf að við mæðgur séum sammála. Nú þarf bara að finna skyrtu á strákinn og þá ættu allir að vera nokkuð vel settir og jólakötturinn ætti ekki að finna neinn hérna til að næla sér í.
Jólagjafirnar eru að verða komnar í hús - nú þarf bara að redda þeim síðustu og pakka þeim inn. Æ já einmitt, jólakortin. Myndataka mistókst aðeins um síðustu helgi svo við verðum að redda þeim á morgun til að fara að koma útlandakortum í póst. Hrikalegt hvað við erum alltaf sein að senda þau. Þau eru aldrei komin fyrir jól til ættingja og vina erlendis - vona að við náum að snúa því við í ár.
Svo er verið að prjóna og prjóna - það er alveg magnað hvað það gengur ágætlega hjá kjánanum með tíu þumalfingur og tvær vinstri hendur :o) Ekki viss um að handavinnukennarinn minn síðan í grunnskóla myndi trúa því að ég gæti þetta!
Later

Ummæli