Fara í aðalinnihald

Jóla... jólajóla

KBB fór í gær með ömmu sinni og afa á jólatónleika Baggalúts og þau komu heim á bleiku jólaskýi. Pa talaði um bestu tónleika sem hann hefur farið á, litla mín brosti allann hringinn og ma var alsæl yfir því hversu skemmtilegir hljómsveitarmeðlimir voru. Ég var verulega sátt að heyra að þetta hefði verið svona gaman, það var tilgangurinn með því að senda þau saman, alltaf gaman að gera eitthvað svona skemmtilegt á aðventunni.

Held svei mér þá að það sé búið að redda öllum jólagjöfum í ár, alltaf gott þegar þær eru allar komnar í hús. Fyrsta var sett upp í skáp í byrjun október og síðustu tveimur var bjargað hingað heim í kvöld :o) Nú þarf ég bara að ganga frá nokkrum þeirra og pakka öllu fíneríinu inn. Það tekur alltaf sinn tíma svo það verður græjað á morgun, er orðin heldur þreytt núna til að byrja.

Ég fór nefnilega ekki að sofa fyrr en 3:20 í nótt - drengurinn með gubbupest frá miðnætti til hálf fjögur. Sem betur fer varð hann ekki hundveikur eins og þau hafa stundum orðið krakkarnir. Tvær góðar gusur og hann var laus við viðbjóðinn. En mamman tók það að sér að bera út fyrir hann og vaknaði því kl. 5:50 eftir rúmlega tveggja tíma svefn. Og þar sem ég átti að vera mætt í Mjóddina kl. 9:20 þá hentaði það ágætlega og ég fór ekki að sofa aftur heldur settist fyrir framan sjónvarpið og prjónaði það sem ég áttir eftir að klára svo ég geti byrjað á nýju stykki fljótlega :o)

Við vorum nett á nálum með þessa pest því ekki viljum við eyða jólunum í að skiptast á með hausinn ofan í klóssettskálinni og í dag var ömmudagur. Lilja tekur grísina sína (sem eru komnir uppúr leikskóla) og eyðir deginum með þeim í laufabrauðaútskurði og búðarápi og svo fá þau sér gott að borða saman. þau hafa hlakkað til því þau skemmta sér alltaf vel þennan dag frændsystkinin. Svo það hefði verið fúlt ef KEB hefði steinlegið hér heima og misst af fjörinu. Sem betur fer náði hann að sofa vel og fór aðeins seinna en þau hin út í skóla til að græja laufabrauðið. En hann náði að vera með, þeim frændum öllum til mikillar gleði. Þau eru sex stykki, þrjár dömur og þrír herrar. Svo bætast í hópinn einn lítill herramaður og ein lítil skotta, sem kemur í heiminn í janúar. Mikið verður þetta brjálað fjör. 17 ár á milli elsta ömmustráksins og lítillar skottu sem enn er bumbubúi. Ég hef grun um að þessi elstu eigi eftir að vilja vera með eins lengi og amman nennir að fá þau :o)

baráttujólakveðjur til allra sem enn eru hlaupandi út um allann bæ til að bjarga jólunum heim til sín - ég á enn eftir að græja svona smávegis og ætla að nota daginn á morgun vel og svo Þorláksmessu líka - Jólin koma hvort sem ég verð ready eða ekki svo ég ætla ekki að stressa mig of mikið :o)

O&O

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...