Blogga jú jú - nei ekkert hætt en eitthvað léleg undanfarið samt. Nóg að gera í þrifum og undirbúningi fyrir fermingu frumburðarins. Baðherbergið orðið skínandi hreint, svo mjög að börnin spurðu bæði undrandi hvað hefði eiginlega gerst þegar þau opnuðu skápana um kvöldið til að bursta tennur. Allt svo snyrtilegt og á sínum stað. Eldhúsið hálfnað, nú á ég bara eftir að taka neðri hlutann af innréttingunni. Krakkarnir tóku herbergin sín vel í gegn í gær - ég á nú eftir að taka þetta út hjá þeim og leggja lokahönd á herbergin en þau voru ansi dugleg.
Það er allt að smella fyrir veisluna. Gestirnir verða nú töluvert fleiri en ég hafði fyrst gert ráð fyrir. Í haust skrifaði ég lista og á honum voru um 52 - fín tala bara. Svo einn daginn nú nýlega hafði fjölgað mikið á listanum fína og rúmlega 70 skráðir. Veit eiginlega ekki hvar ég fann allt þetta fólk en þetta verður bara gaman. Hugmyndin er að byrja klukkan 13 og þeir mæta sem geta þá og svo eru nokkrir sem komast ekki fyrr en aðeins seinna og það er bara fínt, fólk hefur þetta eins og það vill. Vonumst bara til að sem flestir komist.
Í dag fórum við með Sólveigu, Viktori og Sisku í góðan göngutúr á Reykjafellið. Yndislegt veður og skemmtilegur félagskapur, rúmlega tveggja tíma ganga. Hundarnir lausir meira og minna alla leiðina og þeim leiddist ekki alveg í snjónum. Það er svo gaman að sjá þau ýta höfðinu eins og snjóskafa ofan í snjóinn og bruna áfram. Eins gott að það séu ekki ljósastaurar þarna á vegi þeirra því þau myndu klessa á þá. Siska tók bæði Ronju og Úlf í smá kennslustund um hvernig goggunarröðin er hjá hundum. Hún elst = hún ráða ÖLLU. Svo þegar þau voru búin að ná því þá var bara allt í góðu. Langt síðan ég hef séð Ronju tekna svona í bakaríið. Hún reyndi nú aðeins að láta í sér heyra og skína í eina tönn eða tvær en varð að játa sig sigraða að lokum.
Við vorum öll sæl og sátt eftir göngutúrinn og ætlum aftur við fyrsta tækifæri. Planið er að fara dagsferð þarna inn eftir með nesti og nýja skó - eða bara nesti og myndavélar :o)
Er heim var komið fór fjölskyldan að hafa sig til fyrir fermingarveisluna hans Alexanders. Þeir eru þrír frændurnir sem fermast í ár. Algjörir töffarar! Veislan haldin á vinnustað Haffa og þetta var svona ljómandi vel heppnað allt saman. Fallegur salur og bjartur, góður matur, góðar kökur og skemmtilegt Bingó. Okkar borð tók fyrsta og síðasta spilið. DH fékk fyrstur Bingó og þar með 1 stk páskaegg. KEB fékk svo síðasta og stærsta eggið þegar allt spjaldið var spilað. Okkar borð tók sem sagt tvö egg af fjórum :o) Og það sátu bara sex manns við hvert borð! Lucky us!
Nýjustu fréttir af Úlfi eru þær að gæinn er að missa allar tennur og þessar stóru úlfatennur eru að ryðjast upp. Og púff það breytist svo á þeim kjafturinn - smá stór allt í einu :o) Þetta er búið að vera að gerast síðasta mánuðinn. Hann er líka orðinn jafn stór og Ronja nú þegar. Hann verður vígalegur þegar hann hefur náð fullum vexti þessi elska. Loppurnar eru ekki litlar heldur, gefa vísbendingu um að hann eigi eftir að stækka töluvert ennþá. Hann er ennþá jafnmikil kelirófa og athyglissjúklingur. Ef Ronja fær eitt klapp þá er hann kominn, stekkur á okkur og vill sitt knús og hann er ekkert penn við þetta. Bara ruðst og valtað yfir hana til að komast að.
Later

Ummæli