Fara í aðalinnihald

Ferming

Nú nálgast fermingardagur drengsins ískyggilega hratt. Veislan heima svo það verður nóg að gera til að allt verði tilbúið.

Sófasettið sem ég ætlaði reyndar að kaupa í fyrra er komið í hús. Fórum mæðginin í smá leiðangur í síðustu viku til að finna heppilega liti í kerti og skreytingar. Grænn varð fyrir valinu sem aðallitur - búin að kaupa kerti, sálmabók, servíettur og fleira smálegt. Svo á ég örugglega eftir að bæta við þetta eitthvað þegar ég verð búin að átta mig á uppröðun hérna. KEB var að deyja drottni sínum með mér og mömmu í Garðheimum - hann var ekki að ná þessu - þetta er ekki svona mikið mál - bara pikka eitthvað og málið dautt.

Við KEB fórum svo saman í Kringluna áðan til að skoða fermingarföt. Ég er búin að ætla með drengnum í bæinn í tvær vikur núna. Við erum bara of busy people - nenni ekki þarna um helgar þegar ALLIR eru á staðnum. Held jafnvel að ég sé fólksfælin eða með innilokunarkennd innan um of mikið af fólki. I need my space. Svo er hann svo upptekinn alltaf á virkum dögum - hittist þannig á að sjaldan er hægt að fara og hafa góðan tíma. Hann reyndar hefur ekki þolinmæði í langar búðaferðir. Anyways - skelltum okkur áðan, ætluðum af stað kl. 16 en komumst ekki fyrr en 16:30 og þá þurfti að byrja á að skutla KBB í hestana. Það er alltaf eitthvað.

Vorum komin í Kringluna um kl. 17, þar lokar 18:30 - var svo fegin þegar ég sá að það lokaði ekki kl. 18. Fékk auka hálftíma. Byrjuðum á að fara í Marco Polo - þar voru flauelsjakkaföt á útsölu - hmm hljómar vel. Við mæðgin erum svipuð, þó drengurinn myndi ALDREI samþykkja það. Jakkaföt eru ekki mitt cup of tea - nobb og hafa aldrei verið. Sérstaklega ekki á litlum drengjum. Og minn er náttlega ennþá lítill drengur - verður það í fullt af árum í viðbót eins og hægt er að ímynda sér he he. Okkur leist samt vel á þessi - mjúk og mátulega þægileg. Sé fyrir mér að hann muni geta notað þau meira en einn dag. Trúið mér - það er ekki séns að koma honum í spariföt oftar en á jólunum! En þessi föt væri líka hægt að nota buxurnar stakar og jakann líka við eitthvað annað.

Við (ég) ákváðum samt að kíkja í fleiri búðir - bara til að sjá hvað fleira væri í boði. Alls staðar eru svört jakkaföt í boði - rauðar skyrtur eða hvítar - svart bindi eða/og vesti. Mjög fínt en peningasóun fyrir mig því drengurinn fæst aldrei nokkurn tíma í þau föt aftur - EVER - Ekki fyrr en hann verður 18 kannski og þá verður hann vaxinn upp úr þeim. Svo væri hægt að kaupa svartar gallabuxur og skyrtu, vesti, jakka - einhverja svoleiðis blöndu. Þá gæti hann líka bara verið í jólafötunum sínum aftur - sem by the way, hann hefur ekki fengist í aftur eftir jól. Notaði reyndar gallabuxurnar á öskudaginn :o)

Þegar ég hef nefnt að vera í gallabuxum (sem eru mjög snyrtilegar) og skyrtu - þá æpir fólk (foreldar okkar BH) nei nei það gengur ekki. Ekki gallabuxur. það þarf að vera aðeins fínni en það. Og drengurinn HATAR jakkaföt og bindi. Hvað á mamman að gera?

Ráfuðum þarna um allt og sáum ekkert svona sem greip okkur neitt - nema jakkafötin í fyrstu búðinni sem við bæði gátum sætt okkur við. Fórum líka í Kaupfélagið - skóbúð - og sáum þar skó sem smellpössuðu svona fínt við fötin. Svartir léttir skór með grárri rönd á sólanum. Ferlega smart bara. Endaði þannig að ég tók fötin og skóna í svona heimlán. Má skila á morgun og fá endurgreitt ef þetta hentar alls ekki. BH leist vel á þetta, settum jólaskyrtuna undir. Hún er hvít með silfurteinum - smellpassar við. Og af því ég er svo sjálfstæð - NOT - þá hringdi ég í mömmu og bað hana að koma og taka þetta út með mér, hringdi líka í tengdó því hún hefur auga líka fyrir svona jakkafötum. Væri pínu lost ef þeirra nyti ekki við. Hins vegar fá þær ekkert að hafa puttana í því þegar ég fer með honum í bæinn að kaupa skopparafötin á piltinn - þar erum við mæðginin á heimavelli.

Þær lögðu blessun sína yfir klæðnaðinn, fannst þetta allt saman svona ljómandi fínt, svo nú er sá hausverkur frá :o) Eftir að hafa rætt við þær um veisluna og veitingar þá sé ég að þetta verður ekkert mál - smá vinna en bara gaman. Við KEB vorum alla vega ekki lengi að redda fötum, það tók innan við 80 mínútur - geri aðrir betur :o)

Halelúja

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Til hamingju með að vera komin með fötin :) þá er sá höfuðverkur frá. Lýsingin hlómar vel hann verður örugglega voða fínn, kv.Heiða
Lata húsmóðirin sagði…
Sæl Lóa mín. Allt of langt síðan ég kíkti hérna inn. Held ég gæti eytt heilu kvöldi í að lesa allt!!
En flott að drengurinn er kominn með fötin. Gaman að sjá hvað við erum ólíkar með svona jakkaföt á stráka mínir hafa verið í jakkafötum á jólunum síðan þeir voru 2 ára :O)

Kveðja Sonja
Lóa Björk sagði…
Þínir eru svo miklir herramenn Sonja mín, við KEB erum eins með það að þola ekki þegar föt þrengja að okkur. Hef aldrei getað verið í svona dragt og jakka - alla vega óskaplega sjaldan :o)
Heiða þú tekur þetta út hjá okkur ef þú kemur hérna eitthvað fyrir fermingu :o)
Nafnlaus sagði…
Lóa mín þú hringir bara ef þér vantar hjálp. Ekki málið að hjálpa til. Fötin koma pottþétt vel út, hljómar allavega vel ;). Kv Helga

P.s Hvenær er fermingardagurinn svo.
Lóa Björk sagði…
he he - ég ætla að hringja :o) Hann fermist 5. apríl!

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...