Á leiðinni í fermingarveisluna í gær tilkynnti KBB að hennar fermingarveisla (eftir FJÖGUR ár) yrði miklu flottari en veislan hans KEB. Nú nú við vildum vita ástæðuna - Já sko þá verður kreppan búin og svona... :o)
Held að hann KEB verði nú ekkert sérstaklega var við það að veislan sé í einhverjum kreppubúningi. Held að við hefðum ekki gert mikið, ef þá nokkuð, öðruvísi en við erum að gera nú þegar.
Daman samdi ljóð í skólanum í síðustu viku, það endaði uppi á vegg á kennarastofunni. Er ekki með það hérna hjá mér - skrifa það kannski hérna inn seinna. En það er kreppuskotið með tilvísun í mjög skuldsetta þjóð - einhver kennarinn hafði á orði að það væri greinilegt hvað væri talað um á heimili þessa barns. Tengdó hélt nú ekki - ekkert meira en annars staðar. Það er rétt hjá henni - börnin mín sjá bæði fréttir í sjónvarpi og svo fletta þau blöðunum á morgnana. Það þarf ekki foreldra til, svo þau fái kreppu-umræðuna beint í æð. Hins vegar spyrja þau bæði reglulega um eitthvað sem þau heyra mikið en skilja kannski ekki alveg - hugtök o.þ.h. Þá náttúrulega reynum við að svara þeim og stundum þegar verið er að betla eitthvað þá fá þau stundum það svar að það kosti of mikið. En reyndar hafa þau fengið það svar í gegnum tíðina svo það er ekkert nýtt svo sem.
Later

Ummæli