Sat við tölvuna í gærkvöldi og heyrði opnað út - spáði ekkert í það. Fann svo að það var frekar kalt hérna inni, svona eins og gluggi væri opinn og að það blési inn. Spáði heldur ekkert í það. Svo var lokað töluvert seinna - var ekki með hugann við þetta. Krakkarnir eru alltaf eitthvað að brasa en við hjónin sátum bæði inni í stofu með annað augað á sjónvarpinu.
Töluvert seinna hringir síminn og BH svarar. Ég er á vappinu hérna frammi í holi og sé að það eru bílljós beint inn hjá okkur - fór út í glugga til að athuga hvort komnir væru gestir. Heyri BH eitthvað tala um hundinn en var enn að spá hvort það væru gestir úti.
BH kallar þá til mín hvort hundurinn sé úti? HA - Ronja liggur bara og kúrir eins og snúður í bælinu sínu en ég sé hvergi Úlfinn. Fer inn í Þvottahús, hurðin ólæst en lokuð. Ég gái út og sé að Harpa og Gummi voru að koma heim eftir sumarhúsaferð um helgina - með ljósin kveikt á bílnum ennþá. Svo sé ég Úlf á skoppi hérna úti fyrir framan í beðinu. Ég kallaði á hann og hann kom í hvelli eins og alltaf. Þegar ég kom við hann og klappaði honum þá fann ég að hann var kaldur. Hann var búinn að vera úti í töluverðan tíma að spóka sig hérna fyrir utan. PÚFF og við höfðum ekki hugmynd. En það rifjaðist upp fyrir mér að hafa heyrt í útidyrahurðinni og fundið trekkinn án þess að velta því nokkuð fyrir mér.
Kríli hafði þannig hjálpað sér sjálfur út og hurðin lokast á eftir honum stuttu seinna. Gummi hringdi í BH þegar þau komu heim og sáu hann einan úti að viðra sig. Sagði við BH "Ef þú ert úti að viðra hundinn, þá ertu ósýnilegur, við sjáum þig ekki".
Við erum bara svo fegin að Úlfur fór ekki á flakk um bæinn. Við erum mest hrædd um að þau verði fyrir bíl ef þau sleppa svona. Erum ekki hrædd um að þau geri neinum mein því þau eru bæði svo ljúf og góð.
Þetta er í annað sinn sem Gummi ýtir við okkur með lausan hund. Í fyrra sinnið - í haust - þá rauk Ronja út um þvottahúshurðina þegar ég stóð í gættinni en sá hana ekki smeygja sér framhjá mér. Hún fór ekki langt heldur, rétt út í garð og svo beint yfir til Gumma sem greip hana :o)
Later

Ummæli