Fórum á sýninguna Æskan og hesturinn áðan kl. 13. Ég var mætt með KBB rétt eftir kl. 12 í hesthúsin svo þær frænkur gætu gert sig tilbúnar. Ég fór 12:20 í Reiðhöllina til að taka frá sæti fyrir hersinguna. Ég, BH, SBK, KBB, tengdó, ma og pa - allir spenntir. Það voru þó nokkrir komnir og búnir að taka sér sæti og taka frá sæti. Eins gott að mæta tímanlega.
Sýningin byrjaði eins og venjulega á fánareið og svo komu grímuklæddir krakkar sem teymt var undir, svo grímuklæddir krakkar sem gátu riðið sjálf. Þau voru öll svo frábær, mikið lagt í búninga og hestarnir skreyttir líka mikið. Yndislegt að horfa krakkana þau voru svo flott. Indíánar, kúrekar, prinsessur, einn rosa flottur konungur, Hulk, Spiderman, bóndakona, knapi (í hátíðarbúning) og alls kyns fleiri furðuverur.
Svo komu atriðin hvert á eftir öðru og þau voru svo flott og skemmtileg. KBB var eftir hlé og þau voru tuttugu og fjögur á vellinum að gera sitt atriði. Það tókst ljómandi vel hjá þeim. Mamman á vídeóvélinni og pabbinn á myndavélinni - já það þarf að documentera þetta allt saman. Verst að maður sér ekki nógu vel sjálfur atriðið þegar maður er upptekin með myndavélina. Langaði helst að sitja aftur kl. 16 - eða koma bara um fimmleytið þegar hún er aftur og sjá þá betur. Nennti því samt ekki.
Allir þessir krakkar undirbúa sig vel fyrir sýninguna og er KBB engin undantekning. Búin að æfa í einn og hálfan mánuð atriðið með hinum krökkunum. Auðvitað varð að passa að öll föt væru hrein og fín í dag. Reiðbuxurnar héngu því blautar á snúrunum í nótt - rétt náðu að þorna, skálmarnar fengu smá aðstoð frá ofninum í morgun. Í gærkvöldi fór daman í sturtu og varð ég að blása hárið á henni svo það væri ekki rennandi blautt þegar ég setti tvær fastar fléttur frá enni og niður. Allt útpælt - svo í hléinu á sýningunni þá hljóp ég niður með henni (SBK var að ná í hestinn) og losaði flétturnar og niður streymdi ljósa hárið lengst niður á bak. Svo var hjálminum skellt á kollinn og hárið kom niður undan. Svo flott skvísa. Auðvitað var búið að skreyta hestinn smávegis. SBK hafði keypt rautt glimmer til að spreyja á hestinn - það sást því miður ekki of vel eftir túrinn úr hesthúsinu í reiðhöllina því það rigndi heilósköp.
Þessi sýning er aftur á morgun og ég mæli með því að skella sér ef fólk langar að gera eitthvað skemmtilegt. Börn hafa mjög gaman að þessu - nema KEB sem fór með SBK og KBB að horfa þegar hann var á sjöunda ári. Hann var gjörsamlega að kafna greyið og endaði á bráðamóttökunni þar sem þeir opnuðu aftur öndunarveginn hjá honum og svo eyddi hann nótt á Borgarspítalanum eftir lætin. Já hann var bara heima í dag - treystir sér ekki til að fara þarna inn einu sinni þegar hestasýningar eru í gangi. Skil hann vel - hann var lengi að jafna sig eftir þessa ömurlegu lífsreynslu. Hann er sem sagt með ofnæmi fyrir hestum blessaður. Það er stundum svo slæmt að hann fær pirring í augun og hor í nefið þegar þær frænkur koma hingað heim eftir hestastúss - það á helst við þegar blautt er í veðri eins og núna. Enda verð ég að vera dugleg að þrífa allt eftir KBB þegar hún kemur heim.
Later

Ummæli