Jólaboðin afstaðin, allir pakkar uppteknir, allir úttroðnir af mat og gotteríi. Á milli jólaboða hefur okkur þótt gott að kúra hérna heima í náttfötunum frameftir öllu að dunda í rólegheitum með nýja fína dótið, lesa bækur eða glápa á sjónvarp. Varla að við höfum nennt að hafa okkur til í jólaboð að hitta vini og ættingja en látið okkur hafa það og ekki séð eftir því er á staðinn var komið.
Aðfangadagskvöldi eyddum við að venju með mömmu og pabba og Svandísi í Álfheimum. Þar eru gjafir frá minni fjölskyldu teknar upp eftir matinn. Amma kemur svo til okkar eftir að hún hefur borðað með afa á Sóltúni og tekið upp gjafir með honum.
Við skemmtum okkur vel að venju, Svandís reyndi ítrekað að hafa fé af börnunum mínum með veðmálum og gekk bara vel, ég tilkynnti BH að skilafresturinn á mér væri löngu útrunninn er pabbi gaf í skyn að hann hefði kannski setið inni (sem hann hefur reyndar ekki gert). Og pabbi kveikti í skyrtuerminni sinni er hann kveikti á kertum. Eins og ég sagði, aldrei leiðinlegt hjá okkur.
Allir voru í skýjunum með gjafirnar sínar. Krakkarnir fengu heilósköp af pökkum, gjafirnar sem biðu okkar í Álfheimum komust ekki undir tréð með góðu og ég minntist þess að við BH vorum að spá í að ræna trénu á Austurvelli til að setja þær gjafir sem biðu okkar heima undir það. Því tréð okkar var allt of lítið til að koma þeim fyrir í kringum með góðu.
Á jóladagsmorgun vorum við BH vakin á slaginu 10. Tími til að opna gjafirnar frá Baldvins fjölskyldu. Þær voru endalaust flottar og allir svo lukkulegir með sitt. Krakkarnir fengu gjafirnar sínar frá mömmu sinni og pabba. Í Ár voru fleiri en ein á hvort barn, ákvað að pakka inn kuldaskónum sem ég hafði keypt á þau og gaf þeim í jólagjöf. Pet Shop leikföng voru svo gott sem uppseld í landinu svo ég keypti handa KBB nokkra litla Pet Shop pakka, var síðan svo heppin að finna veglegt hús í Hagkaup í Smáranum og gat bætt því við. KEB fékk skrifborðsstól og fékk líka tækni Lego bíl svo hann hefði eitthvað að byggja yfir jólin. Þetta eru eiginlega síðustu jólin sem hann hefur áhuga á leikföngum kannski - veit ekki. Leikföngin verða kannski bara dýrari núna, það er spurning.
Svo héngum við bara á náttfötunum þar til við neyddumst til að drífa okkur í skárri föt og fara til ömmu í Miðtúni. Mamma sá um boðið þetta árið, plataði mig í að gera heitt súkkulaði - ég hafði þrýst svo á að hún gerði þannig að hún gafst upp en lét mig um það. Við fjölskyldan gerum oft heitt súkkulaði hér á sunnudagsmorgnum og því þótti mér það ekki mikið mál að redda því. Er ég var búin að sjóða í tveimur pottum og koma því í könnur og var að gera aðra tvo var komið fullt af fólki og ég stóð og spjallaði við Sigga, Steinar og fleiri, Hildur kom og vildi taka heita réttinn úr ofninu. Ég sneri mér við og ætlaði að athuga með pottahanska, í nákvæmlega þrjár sekúndur sléttar (það eru vitni). Svo heyrist POTTURINN - SJÓÐA - AAAA - HÉRNA. Ég sneri mér við og allt var við það að sjóða uppúr - kippti pottinum af hellunni í hvelli en tókst ekki að bjarga því alveg og þurftum að þurrka upp slatta af súkkulaði af eldavélinni og af gólfinu. ÞRJÁR SEKÚNDUR og ég er með vitni. Aldrei hefur mér tekist að láta sjóða upp úr heitu súkkulaði áður, er samt mjög dugleg að gleyma grjónum og slátri og alls konar öðru sem sýður upp úr hjá mér reglulega - en þá er ég ekki með fullt af fólki að horfa.
Við vorum síðust út úr partýinu í þetta sinn - erum venjulega fyrst - hjálpuðum mömmu að ganga frá öllu. Alltaf séð um að amma þurfi ekki að gera neitt - alla vega ekki mikið.
Svo var brunað í næsta jólaboð til ömmu í Breiðholtinu. Þar var líf og fjör að venju - aldrei rólegheit er þetta fólk kemur saman. Krakkar á hlaupum og fullorðið fólk að tala hvert í kapp við annað. Hvernig er annað hægt - amma og afi eiga níu börn. Svo eru makar, ömmubörn og langömmubörn. Samt voru alls ekkert allir mættir, Jana í Kanada - kemur yfir áramótin, margir komnir og farnir. Við fengum hangikjöt í kvöldmatinn eins og venjulega, það rann einstaklega vel niður, rosalega gott kjöt. Amma og afi lukkuleg með nýju uppþvottavélina sem systkinin splæstu í fyrir þau í jólagjöf, nú þurfti enginn að standa og vaska upp allt kvöldið. Pabbi fyndinn þegar hann kom heim á aðfangadag og spurði mömmu alveg miður sín - heyrðu gleymdum við alveg að kaupa gjöf fyrir mömmu og pabba??? Ég var ekki með neitt til þeirra - tók bara við gjöfum!!! Einn smá utan við sig - hafði nokkrum dögum fyrr tengt vélina fyrir þau.
Á leiðinni heim úr Breiðholtinu náðum við í Lilju til Björgvins og skutluðum henni í afmælisjólaboð í Grafarholtið. Er við loks komum heim liðu um 10 mínútur og þá voru allir komnir í náttfötin sín fram á gang. Engum hafði verið sagt að hátta sig - bara svo nice að hangsa í þægilegum fötum.
Í dag fór BH út, skellti sér í líkamsrækt - kom svo bara ekkert heim aftur. Er ég hringdi í hann meira svona til að athuga hvort ég þyrfti að leita að honum á sjúkrahúsunum, komst ég að því að hann hafði farið út á braut og skemmti sér við að horfa á gaura tæta á stórum jeppum eins og þeir væru á sportbílum. Ég bað hann bara um að misþyrma ekki bílnum mínu - hann lofaði því.
Krakkarnir fóru út að leika sér í snjónum.
Var ég búin að nefna þetta með náttfötin? Ég fékk nefnilega náttföt og slopp í jólagjöf. Ég er búin að vera í því öll jólin og klæddi mig ekki fyrr en að ganga fimm í dag er ég varð að koma mér út í jólaboð til Lilju. Við erum að tala um hrikalega þægileg náttföt sem eiga ágætlega við - á þeim stendur - GRUMPY, BUT GORGEOUS - og það er ég alla morgna. Svo fékk ég bleikan náttslopp - svona væmin bleikan með brúnum doppum - og hann er svvooooo mjúkur. BH vildi vita hvort ekki hefðu fylgt honum kanínueyru svona á spöng. Mjög svekktur að svo var ekki. Í þessu sat ég og las í allann dag og kíkti með öðru á Sound of Music.
Það var mikið borðað og sprellað hjá Tengdó - alltaf fjör þegar bræðurnir og fjölskyldur hittast - sem er reyndar frekar oft. Kalkúnn í matinn - er hægt annað en að éta aðeins yfir sig.
Gjafirnar frá okkur þetta árið voru dálítið heimatilbúnar - alla vega til ömmu og afa okkar og mömmu og pabba okkar. Ég bjó til sex stykki scrap albúm á línuna, tók bara ár að útbúa - reyndi aðeins á þolrifin síðustu metrana en small að lokum. Kjartan Elvar skrifaði sögu - heila bók - á u.þ.b. ári - lauk við hana í lok sumars. BH ákvað að senda hana í prentsmiðju og fá alvöru bók tilbaka. Bókin er spennandi ævintýrasaga og nú eru allar ömmur og afar að lesa hana.
Sem sagt hefðbundin jól hérna hjá okkur þetta árið. Nú bíðum við spennt eftir áramótunum, ætlum að vera heima þá og fá mömmu, pabba og Svandísi til okkar eins og oft áður. Lilja verður vonandi hjá okkur í ár eins og í fyrra.
Svona eru jólin

Ummæli