BH floginn til Belgíu ásamt DH- ekki í fyrsta sinn sem bráðnauðsynlegt reynist að rjúka út rétt fyrir jól - eða á milli jóla og nýárs. Hann kemur svo heim aftur á föstudaginn.
Síðasti skóladagur í dag fyrir jól hjá krökkunum - bara litlu jólin á morgun, það er víst enn leyfilegt að skoppa í kringum jólatré í skólanum. KEB fékk einkunnir fyrir samræmdu prófin í gær. Stóð sig vel að venju - vel yfir meðaltalinu.
Við Helena fórum í gær og keyptum nokkrar jólagjafir - þetta er allt að smella nú á ég voðalega fáar gjafir eftir - klára þær á morgun vonandi. Jólakortin farin í póst. En það er allt í drasli hérna hjá mér í stofunni - er að græja jólagjafir.
Amma hans BH er á spítala, er með verulega slæma lungnabólgu og ekki víst að hún komi heim fyrir jól. Við vonum nú samt að hún nái sér nógu mikið til að halda jól heima. Þeir bræður heimsóttu hana í gær, rétt láta sjá sig áður en þeir fóru út. Við krakkarnir kíkjum svo til hennar kannski á morgun.
Við BH fórum í fyrradag og ætluðum að redda jólagjöfum fyrir krakkana - búin að ákveða hvað það átti að vera svo þetta átti að vera lítið mál. Allt meira og minna uppselt það sem daman átti að fá og svo drulluléleg þjónusta í búðinni þar sem gjöfin fyrir drenginn fæst að við löbbuðum út. Og svo bara yfirhöfuð drulluléleg þjónusta í flestum búðum sem við auluðumst inní þann daginn. Toppaði það alveg er við fórum á Taco Bell í Hafnarfirði - ég fékk svona flashback síðan í Bandaríkjunum um árið. Sagði BH að starfsfólkið þarna hefði sennilega verið sett í þjálfun í USA, því þetta var alveg eins og þar. Málið var að ég var eitthvað að heyra illa - spurði drenginn hvort ég gæti ekki fengið kjúklinga eitthvað - svarið var ???????? ég sagði "HA" fjórum sinnum, "hvað segirðu" einu sinni og "ég heyri ekki hvað þú segir" einu sinni - svo held ég að BH hafi sagt mér að ég gæti breytt öllu í kjúklingarétt. Þegar fólk heyrir illa - hækkar maður þá ekki röddina eða talar aðeins skýrar fyrir það? Gaurinn talaði óskýrt ofan í bringuna á sér frekar lágt í öll skiptin sem ég sagði ha - og alltaf teygði ég mig nær og nær til að reyna að heyra betur - get svarið það. Ég hef áður upplifað svona bjánagang - það var á McDonalds í Florida. BH stóð og glotti fyrir aftan mig því hann vissi alveg hvað gekk á - þetta er svona standard spurningalisti sem settur er fyrir fólk sem er að versla sér að borða - þegar þú hefur svarað einni spurningu þá fylgir önnur strax á eftir, endalaust. Við vorum nýkomin í landið og ég ekki orðin sjóuð í þessu - maður lærir þetta utanað eftir nokkur skipti. Ég komst þokkalega í gegnum pöntunina þar til síðasta spurningin kom - mér var fyrirmunað að skilja hvað maðurinn var að segja og horfði bara á hann með stór spurnaraugu og sagði "sorry" (sem jafngildir HA) mjög oft. Aldrei breytti hann um tóntegund, talaði skýrar (ég augljóslega útlendingur), eða hækkaði röddina - sama eintóna runan sem bunaðist út úr honum. Ég stæði þarna sennilega enn ef BH hefði ekki gripið inní og sagt "here". Hann var sem sagt að spyrja bjánann mig "Here - to go?" -Þ.e. ætlaði ég að borða þetta á staðnum eða taka með mér út - og búið að stytta það svona smekklega þannig að mér var fyrirmunað að ná þessu - og hann talaði ekki hægt og ekki skýrt, svona mér til varnar.
Ég var frekar pirruð og svekkt eftir þennan árangurslausa dag í jólagjafainnkaupum - en við redduðum þessu öllu í gær - smá breytingar og þetta gekk betur.
Er að lesa í blöðunum að fólk ætti að stressa sig aðeins minna og láta stressið ekki bitna á afgreiðslufólki í búðum. Ég verð að vera sammála því að fólk ætti aðeins að trappa sig niður áður en það veður í saklaust starfsfólk búðanna sem vinnur langann vinnudag og gerir sennilega flest sitt besta. En verð að viðurkenna að ég verð voðalega skilningssljó þegar starfsfólk í búðum er gjörsamlega áhugalaust um að vinna vinnuna sína. Það er of algengt og þá helst í stóru búðunum, það er eins og enginn viti neitt þar stundum. En þá fer maður bara í minni verslanirnar og fær vonandi skárri þjónustu.
Gangi ykkur vel að undirbúa jólin - ekkert stress - njótið þess að vera til :o) Ég er að reyna - og gengur bara ágætlega.
Later

Ummæli