Inni í minni stofu...
Er að verða léttgeggjuð á þessu og að venju væri ég alveg til í nokkra auka daga til að lesa betur. Vona að þetta hafist nú samt - gerir það venjulega. Maður bara mætir í próf og gerir sitt besta og ef allt fer til fjandans þá er upptökupróf í Janúar (ekki ágúst eins og áður). Stefni nú á að ná þessu almennilega í fyrstu tilraun samt. Fer alltaf hægar yfir efnið en ég geri ráð fyrir, sem betur fer var ég búin að vera þokkalega dugleg að lesa fyrir tíma - það hjálpar.
Búin 12. desember - þá verður farið að huga að jólunum sem eru framundan - bara gaman, hlakka mikið til.
Au Revoir

Ummæli