Þá er önninni formlega lokið - öllum létt á heimilinu, sérstaklega Karlottu. Það mætti halda að hún væri í prófum í desember. "Ég hlakka svo til klukkan 12 í dag" Já já, og af hverju, "þá ert þú búin í prófum" Þetta leggst þungt á krílið greinilega, mjög erfitt allt saman.
Hún spilaði á tónleikum í gær - strengjasveitin spilaði tvö lög saman. Þær spila alltaf fyrstar saman á tónleikum þannig að ég gat laumað mér út með dömuna 10 mínútum eftir að allt byrjaði. Vildi komast heim að lesa og uppskar mikið vonskukast, hún var ekki alveg sátt við að fá ekki að sitja og horfa á hina. Hef ekki samviskubit og hún fékk nokkur vel valin orð í eyra, er á tónleikum í dag hjá Kjartani og svo spilar hún ein á morgun. Þannig að þrír dagar í tónleikahald er alveg nóg af menningu í einni viku þó ég svindli aðeins einn daginn. Krílið sá að sér, "fyrirgefðu mamma" var það síðasta sem hún sagði er hún skaust út úr bílnum og hljóp yfir til Diljár og Unu að leika fyrir matinn.
BH eldaði matinn í gær - annars hefði bara verið drasl - AGAIN - í boði. Held ég sé ekki að ýkja það neitt, alla vega ekki mikið, þetta var sennilega í fyrsta sinn sem hann eldar þegar ég er í prófum. Ofdekraður eiginmaður. Fengum þessar fínu kjúklingabringur í rjómasósu, namm namm.
Framundan er bara sæla að vera búin í prófum og að skila öllum verkefnum - þarf eitthvað að huga að BA-ritgerðinni - lesa og skoða þetta vel. Það verður bara gaman. Svo þarf náttlega eitthvað að kaupa jólagjafir og klára jólakortin. Krónískt vandamál hérna hjá okkur að vera alltaf of sein að græja þau til að senda á réttum tíma til USA og Kanada og Englands. Kannski það nái til Englands í ár samt á réttum tíma ef ég drífi í þessu í kvöld.
Jólaálfur

Ummæli