Fara í aðalinnihald

Gömul kona í námi

Börnin mín eru endalaust pirruð virðist vera á því að mamma þeirra sé í námi - KEB er bara ekki að skilja hvernig mér datt þetta í hug.

Á leiðinni heim í gærkvöldi var ég að spyrja KBB hvort ekki hefði verið gaman í síðasta fimleikatímanum. Jú jú voða gaman - komst samt að því að kennarinn hennar var ekki að þjálfa þær því hún er í prófum ennþá. ÆÆ aumingja hún, sagði ég - hún hefði örugglega frekar viljað vera að þjálfa stelpurnar. AUMINGJA HÚN gellur þá í KEB, hvernig datt þér þá í hug að fara að læra meira ef þetta er allt svona leiðinlegt???

Mamman fór út í útskýringar - próf aldrei voða skemmtileg, en gaman að læra meira og gaman þegar maður er búinn og vel hefur gengið. - Hann var nú ekkert að kaupa þetta alveg barnið og byrjaði yfirheyrslurnar.

KEB: Hvenær er þjóðhátíðardagur Frakka?
LBK: 14. júlí
KEB: hmmm vissir þú það? - en af hverju er það þjóðhátíðardagur þeirra?
LBK: Þá féll Bastillan - var svona táknrænt í byltingunni
KEB: Hva, kanntu þetta allt - EEEnnn hverjir eru Márar?
LBK: Það voru múslimar sem tóku yfir Spán og réðu þar í nokkurn tíma, voru svo reknir í burtu
KEB: Vissirðu það líka??? Þú veist bara allt

Já mamman heppin að vera nýbúin að læra allt um frönsku stjórnarbyltinguna og hafa tekið áfanga um Islam og kristni um árið. En svo byrjaði krílið á Norðulandasögunni og þá var mamman grilluð - veit bara ekkert um einhvern Hans Hansen - sorry. En krakkinn fræddi mig á þeirri sögu allri saman - hann er að læra þetta núna í sögu í skólanum. Verst að hann spurði mig ekkert út í stjórnarskrána - er alveg fersk í þeirri endalausu endurskoðun.

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...