Fara í aðalinnihald

Í landi tækifæranna

Sá á mbl.is áðan að ung kona lenti í þvílíkum hremmingum á JFK í Ameríkunni. Yikes gott fólk þvílík meðferð. Vil ekki einu sinni hugsa hvernig þetta hefði sennilega verið verra ef hún hefði haft fallega brúnan húðlit, svart hár og stór brún augu. Þá fyrst hefðu þeir sennilega virkilega notið valdsins litlu kallarnir á flugvellinum. Hún hafði unnið sér það til sakar að hafa árið 1995 dvalið 3 vikum lengur en leyfilegt var.

Ég get ekki sagt að ég hafi mikinn áhuga á að heimsækja Bandaríkin neitt á næstunni - þó það yrði aldrei þá væri það bara fínt í mínum huga akkúrat núna.

Verð samt að viðurkenna að er ég talaði við hjón fyrir helgi á leiðinni í frí með guttann sinn til Flórída þá fékk ég svona ooooooo why not meeeee. Verst að Florída er í Bandaríkjunum þar sem menn eru að fara á límingunum í valdaofsóknum. Ég er svo til í að skella mér til útlanda - búin að vera að deyja í allt haust úr löngun í smá frí. Spurning um að láta verða af því í Janúar bara - London er fín fyrir mig, klikkar ekki - bara rölta, fara í leikhús og út að borða, verð að hætta - annars fer ég að gráta bara - föst hérna heima í bili.

Hey var að fatta - Akureyri er nú dálítið bara eins og útlönd fyrir mig, það er sennilega bara nóg til að slá á þetta í bili - já já, Akureyri bara málið.

lögbrjótur

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...