KEB keppti í fimleikum í gær og gekk ljómandi vel. Hann vann ekki til verðlauna en hann bætti sig töluvert síðan á síðasta móti sem var fyrir aðeins þremur vikum síðan. Fékk miklu hærri skor núna en síðast. Þetta kemur hratt hjá honum, enda þolir hann ekki að tapa og er hörkuíþróttaálfur. Hann er nú samt voða mjúkur með þetta, skilur vel að það geta ekki allir unnið og að hann þurfi að ná töluvert betri færni til að ná betri árangri. Og hann er líka duglegur að vinna í því. Það er ekki alveg að skemma fyrir að honum hvað honum þykir þetta rosalega gaman.
KBB tók þátt í fimleikasýningu í morgun hjá Aftureldingu - enginn KEB í þetta sinn því hann skipti yfir til Ármanns. Hún stóð sig með mikilli prýði og hefur farið mikið fram á þessu hausti. Gaman að sjá hvað þau eru dugleg og hvað þau geta mikið og alltaf meira frá ári til árs. Sýningin tókst vel og endaði í þetta sinn með heimsókn frá jólasveini. Þessi ágæti jólasveinn er einn sá allra besti sem ég hef séð skemmta bæði börnum og fullorðnum. Það kútveltust allir úr hlátri á meðan hann spriklaði þarna og tætti af sér brandarana.
Við bökuðum smákökur áðan - það tók ekki langann tíma. Ég hafði keypt tilbúið deig í Bónus, vissi vel að ég myndi ekki nenna þessu frekar en undanfarin ár. Skar þetta niður og bakaði í ofninum, verð að viðurkenna að þetta eru ekkert rosa spennandi kökur. BH spurði hvað ólykt var í húsinu þegar hann kom heim úr bæjarferð - það var semsagt lyktin af kökunm. Trikkið mistókst semsagt, baka þetta til að fá kökulykt í húsið, oh well - krökkunum þótti þetta ágætt.
Eirðalaus hérna seinnipartinn, liggja fyrir tvö verkefni - ritgerð og minni ritgerð - geri lítið með þau öll hérna hangandi og á vappinu í kringum mig. Setti BH í það mál að klára að ganga frá eftir sig í stofunni, fara með jólakassana út í bílskúr og setja ljós á tréð og þakkantinn. Fór í heimsókn til Betu ömmu í rúman klukkutíma, svo beint í mat til Lilju kl. 18. Alla vega - er ég kom heim þá var þessi elska búin að koma ljósum á þakkantinn og ljós á tréð - allt uppljómað. Hrikalega flott - vona að ljósin á trénu haldist inni, algjört vesen að seríurnar eru gallaðar og slá út öllu rafmagni í húsinu reglulega. Þannig var það í fyrra - núna vona ég að hann sé búinn að redda því - hann er svo mikill snillingur - eitthvað búinn að græja þetta. Vonum að það dugi. Ég mæli eindregið með að allir komi í bíltúr í Mosfellsbæinn og kíki á tréð (vona að það haldist kveikt á því) og þið verðið að koma í myrkri, sem er reyndar nánast allann sólarhringinn.
Later

Ummæli