Fara í aðalinnihald

Gjöfin

Ég veit ekki hvort þú hefur,
huga þinn við það fest.
Að fegursta gjöf sem þú gefur,
er gjöfin sem varla sést.

Ástúð í andartaki,
augað sem glaðlegt hlær,
hlýja í handartaki
hjarta sem örar slær.

Allt sem þú hugsar í hljóði
heiminum breytir til.
Gef þú úr sálarsjóði,
sakleysi fegurð og yl.

Fann þetta ljóð í jólakortakassanum mínum, veit ekki hver samdi það en fannst það eiga við í dag. Gleðilega hátíð öll sömul og hafið það gott. Við hérna í Leirutanganum stefnum á notaleg jól í faðmi fjölskyldunnar. Framundan jólaboð, venjan er að við höfum varla undan að hlaupa á milli þeirra. Og alltaf er jafngaman að hitta frændur og frænkur sem við sjáum sjaldan og ekki síður þau er við sjáum oft og reglulega. Við erum svo rík af ömmum og öfum á þessu heimili og njótum þess að heimsækja þau og þar er allt frændfólkið.

Gleðileg jól :o)

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Gleðileg jól elsku Lóa mín og auðvita líka til Baldvins, Karlottu, Kjartans Elvar, Svandísar, og mömmu þinnar og pabba.

Ég hef haft mjög mikla ánægðu og margar skemmtistundir að lesa blogið þitt. Vonandi heldur þú áfram á næsta ári.

Kveður Freyja
Nafnlaus sagði…
Gleðileg jól Lóa mín - þetta hefur þú fundið í jólakortinu frá mér í fyrra, höfundur er Úlfar Ragnarsson - mig minnti að ég hefði sett það með - sorry ef ég gerði það ekki ;0) Eigðu góða hátíðardaga - hlakka til að hitta þig milli jóla og nýárs
kærleikskveðja Magnea
Lóa Björk sagði…
Takk fyrir kveðjuna Magnea og Freyja - skila þeim áfram :o)
Gott að vita hvaðan ég fékk ljóðið, var að skammast mín fyrir að halda ekki betur utan um hver hefði sent mér það!!
Jólakveðja
Unknown sagði…
Gledileg jol og hafid tad gott kvedja Helga

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...