Fara í aðalinnihald

My point of view

And I do have one - or two

Allt að verða vitlaust hérna - stundum væri ég til í að vera einræðisfrú (ekki herra). Þá myndi ég náttúrulega beygja alla undir mína skoðun í hverju máli og það væri að sjálfsögðu rétta skoðunin, hin eina rétta.

Byrjum á Steinunni Valdísi, hún leggur fram frumvarp þess efnis að kannski væri rétt að athuga hvort breyta ætti nafninu á embætti ráðherra. Þessar konur - þvílík framhleypni. Allir búnir að gleyma að heitum á dæmigerðum kvennastörfum hefur verið breytt til að bæði kynin geti verið sátt. T.d. Hjúkrunarfræðingur - ekki vilja karlar vera hjúkrunarkonur, skil það vel. Flugfreyjur og flugþjónar - engin spurning, menn vilja helst ekki vera freyjur og við skiljum það vel líka. Fóstrur eru nú leikskólakennarar, því ekki vilja karlarnir vera fóstri - skil það nú reyndar ekki, það gæti alveg gengið. Nema þá heitinu hafi verið breytt vegna þess að það er flottara að vera kennari en fóstra/i. Voðaleg viðkvæmni er þetta í fólki, af hverju má ekki ræða það að konur sem gegna embætti ráðherra fái annan titil? Verð að viðurkenna að ég á ekkert gott orð sem gæti komið í staðinn og sé ekki að þetta eigi eftir að breytast á næstunni og efast um að þær (fáu) konur sem gegna þessu embætti beri varanlegan skaða af þó þær kallist ráðherra. Fólk róið ykkur þetta verður allt í lagi... bara anda inn og svo rólega anda út.

Bleikt og blátt... okei hér erum við aaaaðeins komin yfir strikið. Ég veit ekki betur en að bleikur sé þokkalega kominn aftur í tísku. Ég hét því á sínum tíma að klæða dóttur mína (ef ég eignaðist einhvern tíma dóttur) ALDREI í bleikt. Var sjálf aldrei í bleiku - meira svona bara í mínum bláu íþróttagöllum sem barn. En svo kom Karlotta mín og hún ELSKAR bleikan lit og hefur alltaf gert - átti ég að segja "nei elskan mín, þú verður bara kúguð kona ef þú lætur sjá þig í bleiku" Ömmurnar voru allar mjög duglegar að stinga að mér bleiku þessu og bleiku hinu fyrsta ár barnsins. Hún er svo sjálfstæð að mamma hennar er ánægð bara með öll bleiku fötin hennar og bleiku hárspennurnar og alla bleiku fylgihlutina sem hún hefur sankað að sér í gegnum árin. Dæmi um sjálfstæði hennar: Vorum í Sunnudagaskólanum er hún var 4 ára gömul. Hún og 9 önnur börn voru beðin um að koma og hjálpa aðeins til fyrir framan allt fólkið. Krakkarnir röðuðu sér í beina línu og mín dama var aftast í röðinni. Hreiðar gekk á röðina og spurði þau hvert af öðru hver uppáhaldsliturinn þeirra væri. Sú fyrsta (stelpa) svaraði blár, og þið vitið kannski hvernig fólk hermir eftir fjöldanum, það svöruðu öll 9 börnin að uppáhaldsliturinn þeirra væri blár. Svo kom að litlu músinni minni og ég vissi vel hver uppáhaldsliturinn hennar var, og hún svaraði BLEIKUR. Mamman var svo stolt af dótturinni, hún var alveg samkvæm sjálfri sér þrátt fyrir að allir hinir hefðu svarað blár.
Ég verð að viðurkenna að ég myndi hiklaust velja bleikan eða bláan galla eftir því hvort kynið ég eignaðist ef ég færi upp á deild núna og fengi að velja um hlutlausan hvítan lit eða hina tvo litina. Sorry, hvítt er of hvítt - mín börn eru svo ljós að þau yrðu eins og draugar í öllu hvítu. En kannski er líka bara í lagi að fólk hafi þá þetta val, geti valið um hvítt eða aðra liti. Svo má nú líka bara ræða það að fólk komi sjálft með föt að heiman og þá gæti Helena mín bara komið með sína grænu og appelsínugulu liti - það væri náttúrlega kannski eina vitið bara.
Er ég átti Kjartan Elvar þá fæddust bara drengir þá helgina, fullur sængurkvennagangur og aðeins tvær stelpur á allri deildinni - allt hitt drengir. Hann fæddist á föstudegi og eitthvað er lítið um að það sé þvegið um helgar á spítalanum því allir bláu gallarnir kláruðust og bara bleikir í boði - margar konur hömstruðu galla til að þurfa ekki að setja drengina sína í bleikt. Lítið vissu þær að 10 árum seinna eru allir cool drengirnir í bleiku. Ég var ekki nógu útsjónarsöm að taka mér auka galla og hafa hjá mér til skiptanna og endaði því á að þurfa að notast við bleikan. Var að ræða þetta við eina hjúkkuna og sagði svona í gríni, já ég vona að hann beri ekki varanlegan skaða af þessu barnið - spurning um sálfræðikostnað á unglingsárum. Og eins og mér einni er lagið þá kom þetta greinilega þannig út að mér væri verulega misboðið að barnið þyrfti að þola þá niðurlægingu að vera sett í bleikt. Hjúkkan svona byrsti sig aðeins og sagði þetta hlýtur nú að vera skárra en að honum sé skítkalt. Já já alveg róleg kona góð - bara smá svona grín, vissi ekki að maður þyrfti að vera í trúðabúningnum svo fólk fattaði það.
Well anyways - held að þetta með bleikan og bláan á fæðingardeildinni sé bara besta mál - enda fara langflestar konur heim á fyrsta sólarhring eftir fæðingu og notast því lítið við þessa galla. Börnin þeirra ættu ekki að koma illa út úr því þó dömurnar fái bleikan og drengirnir bláan. Og þegar talað er um mismunun á kynjum þá kem ég af fjöllum, er bleikur svona niðrandi litur?? Ef svo er, þá velti ég því fyrir mér hvort karlmenn séu að verða masókistar upp til hópa því ég veit ekki betur en að margir þeirra séu farnir að kaupa sér bleikar skyrtur og bindi og fleira bleikt og þykir bara rosa coooool.
Kjartan minn myndi ekki fara í bleikt þó ég borgaði honum fyrir það - spurning um áfall í frumbernsku - hmmm það skyldi þó aldrei vera. Rautt var samt alltaf hans litur sem barns - fyrsta hjólið rautt og uppáhaldslitur rauður. Hann er alveg til í rauðar flíkur í dag en dregur línuna við bleikan.

Það er mín skoðun að Ísland er karllægt þjóðfélag - pabbapössun í Hagkaup - þarf að ræða það eitthvað meira?
Konur sem sagt eru ekkert of góðar til að vinna fullann vinnudag, draga svo karlinn með sér að versla og setja hann fyrir fram sjónvarpið af því honum þykir svo leiðinlegt og erfitt að versla og sjá um heimilið almennt. Þær svo sjá bara um málið því þeim þykir svo sérstaklega skemmtilegt að sjá um að kaupa inn og elda matinn og það allt saman. Mér þykir þetta ekki gaman - enda greinilega ekki góður kvenkostur.
Ég hef bara eitt um þetta að segja - ef BH dytti í hug í eina sekúndu að koma með mér að sjá um innkaup og jólastúss þá myndi ég sennilega ganga frá honum ef hann settist bara inn í herbergi í Hagkaup að teygja aðeins úr sér á meðan ég sæi um innkaupin. Hafa þessir menn enga sjálfsvirðingu? Og rökin um að hvaða hvaða læti eru þetta - konum er ekki meinaður aðgangur þarna. Já einmitt - hef alveg tíma í að setjast niður í Hagkaup og horfa á boltann á laugardegi - hef bara ekkert betra að gera við tímann og finnst þetta allt svo gaman.
Segi bara aftur ef karlinn ætlar að setjast niður og slappa af á meðan "kerlingin" sér um að versla fyrir jólin og í matinn almennt - veri þeir þá bara heima hjá sér - það vorkennir þeim enginn. Finnst þetta hámarkið á aumingjaskap. Þetta væri fyndið ef þetta væri grín. Svo má náttúrulega snúa þessu bara við - setja í tækið Aðþrengdar eiginkonur og láta karlinn versla á meðan frúin slappar af - datt það engum í hug?

Ég er ekkert hætt - einræðistilburðir mínir ná lengra en bara eitthvað ímyndað kynjamisrétti - sem er ekki svo ímyndað reyndar.

Við búum í lýðræðisþjóðfélagi - hljómar einfalt en ég hef komist að því að lýðræði er flókið fyrirbrigði. Við erum búin að vera að velta okkur uppúr því síðustu þrjá mánuði hjá henni Ragnheiði. Ætla að hlífa ykkur við því - en leyfi mér að segja að umræður um fermingu og þjóðkirkjuna minnir mig á að nú sé minnihlutinn kannski að kúga meirihlutann. Ég geri mér fulla grein fyrir að það sé trúfrelsi í landinu og er það hið besta mál. Það er samt orðið ansi þreytandi að hlusta á vælið í minnihlutahópum. Er svona voðalegt að blanda saman kirkju og skólastarfi? Hvaða máli skiptir það að fara í ferðalag á vegum fermingarfræðslunnar á skólatíma, efast um að krakkarnir hafi svo slæmt af því. Veit ekki betur en að mörg börn þurfi bara á fræðslu í almennum umgengisreglum að halda. Skiptir þá máli hvaðan gott kemur. Þjóðin er ekki svo full af trúarofstæki að fermingarfræðslan ætti að hræða svona mikið. Þau koma ekki heim uppfull af ranghugmyndum um Jesú og guð að þau séu hreinlega heilaþvegin eftir ferðalagið? Eða hvað?
Og svo varð ég alveg yfir mig bit er ég las í morgun að nú eru litlu jólin af hinu illa líka - hvað er málið, má ekki halda í neinar skemmtilega hefðir innan skólans - höldum við ekki flest öll jól? Og er ekki í lagi að gera sér dagamun í skólanum í tilefni þeirra? Svo er það glæpur að dreifa Nýja testamentinu til barna í grunnskóla - sé ekki hvað er slæmt við það. Foreldrar geta látið þessa bók bara hverfa án þess að barnið þeirra tæki einu sinni eftir því ef þeim er svona misboðið. Þessa bók má nota líka í öðrum tilgangi en trúarlegum - það má hreinlega velta fyrir sér öllu bullinu og vitleysunni sem þar stendur ef fólk kærir sig um það frekar. Það má nýta bókina í þeim tilgangi að kenna barni sínu gagnrýna hugsun frekar en að stunda einhvern rétttrúnað í kristnum fræðum.
Kjartan Elvar hefur fengið fræðslu í kristni í skólanum og hefur ekki orðið meint af. Mér finnst frábært að hann hefur líka fengið fræðslu í öðrum trúarbrögðum, Islam, Búddah, Hindúisma o.s.frv. Þetta er krökkunum kennt án allra fordóma - þau fá fræðslu um trúarbrögð annarra. Hérna heima fá þau svör um trúarbrögð annarra, Islam mikið rætt vegna umræðu í fjölmiðlum t.d. Og við BH reynum að vera hlutlaus og jákvæð í garð annarra trúarbragða, reynum að koma í veg fyrir fordóma hjá okkar börnum gagnvart bæði trúarbrögðum og menningu annarra þjóða. Það hefur gengið bara alveg ágætlega þrátt fyrir að alls staðar séu fordómar ríkjandi, bæði í fjölmiðlum og meðal fólks í kringum okkur. Þegar bölvaðir múslimarnir eru að sprengja allt í tætlur að þeirra mati, þá eru börnin okkar leiðrétt - ekki múslimarnir, heldur lítill hópur fólks sem kennir sig við trúarbrögðin til að réttlæta gjörðir sínar. Kristnir menn ekki alveg saklausir af voðaverkum og það fá þau að heyra líka.
Ég velti því fyrir mér ef ég myndi búa í landi þar sem Islam væri ríkistrú, myndu þeir hlusta á mig ef ég væri að pirra mig á því að börnin mín þyrftu að beygja sig undir þeirra hefðir og venjur - held ekki. Þess vegna blæs ég á það að fjölmenningarsamfélagið Ísland þurfi að beygja sig undir vilja þeirra sem koma langt að til að búa í okkar samfélagi. Enda held ég að það sé ekki fólk af erlendu bergi brotið sem eru að æsa sig yfir kirkjunni og hefðum hér á landi.
Ég vona að jól og páskar verði ekki tekið af okkur vegna háværs minnihluta - sem virðist ekki vilja missa þessa frídaga heldur - eru sko nefnilega í kjarasamningum og þá er það í lagi.
Í lýðræðisríki á meirihluti ekki að kúga minnihluta íbúa - en fjandinn hafi það minnihlutinn á ekki að geta kúgað meirihlutann heldur.

Geri mér fulla grein fyrir að sennilega er þetta voða hallærisleg skoðun - margir sem vilja aðskilnað ríkis og kirkju - það er nefnilega ekki mjög töff að tala fyrir hönd kirkjunnar, það verður að hafa það - hef reynslu af því að vera mjög hallærisleg í umræðum um klám og vændi.

Púst

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Vá Lóa þetta er svo langt að ég verð bara að skipta þessu niður á nokkra daga :O)

Mér finnst ráðherra og ráðynja töff samblanda.

Nei annars mér finnst pabbapössun í Hagkaup fáránleg. Gerir lítið úr hlutverki feðra að mínu mati.

Svo finnst mér að það eigi að leysa fatamálið með því að setja öll börn í bleikt, enda flottur litur :O)
Lóa Björk sagði…
Við værum svo góðar saman - myndum redda þessu öllu í hvelli og allir ánægðir - eða alla vega sumir.
:o)
Nafnlaus sagði…
Anda inn anda út anda inn anda út ....
Nafnlaus sagði…
Eitt þetta sem pirrar mig með fötin upp á barnaspítala, eins og þú nefnir þá eru börnin oftast farin heim eftir sólarhring og annað, það er búið að færast svo í vöxt að fólk klæði börnin sín bara strax í sín eigin föt og velji ekki að nýta fötin sem eru í boði, já það er ekki skylda að klæða börnin sín í spítalafötin.

og annað, ég þarf greinilega að fara að tékka á því hvaða pabbapössun þú ert að tala um, kem alveg af fjöllum.

kv. ellen

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...