Vetrarfrí enn hjá krökkunum - ég sit og er að læra, reyna að ljúka verkefnum áður en ég á að skila. KEB slappur, drepast úr kvefi greyið, vona að hann endi ekki eins og Svandís - hundveikur í 2 vikur. Ætla að komast aðeins áfram hérna í lestri og verkefnum, skreppa svo aðeins út með krökkunum svo við myglum ekki hérna.
Kjartan er að fara í Hrekkjavökupartý á eftir - Ívar vinur hans á afmæli. Það er svona verið að ræða það hvort hann ætli að fara sem Zombie eða Drakúla, sjáum til hvort við náum að gera flottara.
Karlotta ekki hress með að þurfa að fara í fimleika á eftir, það er svo gott að vera bara í fríi.
Annars lítið að gerast hérna hjá okkur, við sváfum yfir okkur í morgun, þ.e. BH rumskaði ekki fyrr en 9:40, allt of seint. Hann sá eini sem þarf að vinna í dag, þ.e. utan heimilis. Ég vil nú meina að ég sé að vinna 24/7 allann ársins hring.
Þannig að í Leirutanganum er allt rólegt í dag í góða veðrinu - elska þetta veður, KALT, SÓL OG LOGN. Bara klæða sig vel og láta kvefið ekki ná sér.
Later

Ummæli