Fara í aðalinnihald

Ódauðlegar setningar

BH: Lóa mín... ég veit þú ert að segja eitthvað.... en ég heyri bara svona suð!
BH: Hva áttirðu ekki nóg pening? Er ekki venjan að kaupa buxur sem ná alla leið niður? (Ég hafði keypt mér kvartsbuxur)

Mamma: Lóa Björk, hættu þessu helvítis blóti! (Ég var 13 ára)

KEB: Ég ætla ekkert að mæta þarna uppskrúfaður sko! (átti að vera uppstrílaður - hann er aldrei til í spariföt)
KEB á þriðja ári - Er afi búinn að berja grasið? (Hansi var að slá grasið)
KEB: Á leið heim á sunnudagskvöldi – hlusta á lagið Litlir Kassar, Paparnir syngja – í lok lagsins segir Keb – skil ekki af hverju þeir fara niður á lága F – foreldrarnir sögðust einmitt vera í vandræðum með þessa gátu líka :) 3. des 2006

KBB: Það er bara gott að við förum til Betu ömmu í dag, ég er alveg rosalega svöng.17. maí 2007
KBB: Ætlarðu að kaupa vöðva?? (BH sagðist ætla að kaupa sér vöðlur í Ellingsen) 2. júlí 2006
KBB: Ha hvernig bananaslys? (Fréttir banaslys í umferðinni í Varmahlíð) 2. júlí 2006
KBB: Við matarborðið: „Það á að gæla Zorró, köttinn hennar Mímí“ Þú meinar gelda, sagði mamman, já einmitt – hann er sko kominn með kærustu. Hvað er annars að gelda? 6. des 2006

Talandi um gelda... Já eða þá datt mér alla vega í hug þegar við BH vorum að horfa á Friends, þátturinn þegar Rachel segir Ross frá óléttu sinni. Gaurinn alveg tjúll og segir að ef smokkar séu ekki 100% öruggir þá ætti að setja slíkar upplýsingar á pakkana, af því það er svo mikið lesið eða þannig. En þetta er víst á pökkunum vildu vinirnir meina.

Við BH fórum í Krónuna stuttu seinna og KBB var með okkur. Komum að kassanum og BH rífur einn smokkakassa úr hillunni og fer að lesa - ég glotti og spurði hvort þarna væru einhverjar prósentu upplýsingar? Þetta vakti áhuga KBB sem spurði hvað þetta væri? Ég svaraði henni að þetta væru smokkar.
KBB: Já já og hvað er það?
LBK: Það er svona til að koma í veg fyrir að fólk eignist börn!
Skelfingarsvipurinn sem kom á barnið var óborganlegur, það var eins og ég hefði sagt henni að við ætluðum að losa okkur við hana sjálfa.
KBB: Ætlar pabbi nokkuð að kaupa svona? (nánast með kökkinn í hálsinum)
LBK: Nei nei
KBB: Hjúkk
Ég var ekkert að benda henni á að við redduðum þessu öðruvísi - margar leiðir til :)

Hún nefnilega er alveg staðráðin í að betla lítið systkini - koma svona tímabil hjá henni - greyið verður að sætta sig við að vera litla barnið okkar að eilífu því ekki fær hún systkini svo mikið er víst. Hún gekk svo langt um daginn þegar hún var að tjá systur minni hvað hana langaði í afmælisgjöf (sem er næsta febrúar) þá var lítið systkini eitt af atriðunum. Svandís spurði hana hvort HÚN ætti að redda því?

Svo man ég eftir einu góðu atriði - Dóttir mín var ekki mjög feimin og vantaði alltaf athygli er hún var svona kríli - kom um 2 ára inn í eldhús til mín allsnakin og spriklaði fram og tilbaka. Ég stóð við pottana og spurði hana af hverju hún væri ekki í neinum fötum? Svarið kom um hæl - bara mig langaði að dansa! Þetta var á þeim tíma sem þjóðfélagið logaði í umræðum um strippstaðina sem spruttu upp út um allann bæ.

oh well

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...