Var bara komin með símann í hönd og að hringja til að gera tilboð - 180 milljónir er ekki neitt svo ég ætlaði að bara að slétta þetta út á 200 milljónir. Geggjað hús til sölu http://visir.is/article/20071030/LIFID01/71030074. En þá mundi ég - æi já Kjartan með ofnæmi fyrir hestum - endemis, annars værum við pottþétt bara á leið í Asparhvarf. Og svo myndum við fara í hvarf líka þegar kæmi að skuldadögum. En það væri seinni tíma vandamál.
Þetta hefði hentað okkur svo vel, Svandís hefði fyllt hesthúsið, Karlotta myndi ríða út alla daga eftir skóla, ég myndi liggja í heita pottinum og glápa á sjónvarpið. Kjartan Elvar fengi nóg efni til að taka upp þarna og Baldvin - ja ætli hann myndi ekki bara endanlega verða gráhærður og reyna að vinna fyrir öllu saman, hann hefur aldrei kunnað að slappa af.
En svona er þetta Kjartan Elvar gæti ekki búið þarna - yrðum þá að skilja hann bara eftir og ég vil það ekki þannig að við ætlum að vera áfram í kofanum okkar í Leirutanganum. Það vill svo til að við erum öll sátt við það svo þetta verður í lagi. Karlotta fer bara áfram til Svandísar í Fjárborgina og ég fer bara í laugarnar til að komast í heita pottinn. Kjartan Elvar hjólar hérna áfram um bæinn og tekur myndir, hefur ekki kvartað hingað til. Og Baldvin, jú hann heldur áfram að vinna og vinna þrátt fyrir að skuldirnar séu töluvert lægri en 180 milljónir.
Yes Yes

Ummæli