Fórum mæðgurnar í Hagkaup áðan - planið var að skipta út gölluðum leggings buxum af dömunni því það var komið gat á þær. Þoli ekki að kaupa föt sem eru með saumsprettu eftir fyrsta þvott og jafnvel fyrr. Við komum að kassanum og Karlotta hvíslar að mömmu sinni: "Ekki vera dónaleg." Ég kom af fjöllum - dónaleg, er ég vön því? Hef ég verið dónaleg í búðum? Jú þegar þú varst að tala við manninn út af tölvunni manstu?
Henni fannst ég greinilega heldur hörð í sumar er ég var ekki sátt við að bíða í marga daga eftir tölvu sem ekki var búin að vera lengur en 6 vikur inni á heimilinu okkar. Biðum frá mánudegi til föstudags og þá var okkur sagt að bíða lengur - þetta var í Elko - bloggaði þetta í sumar þannig að ég nenni ekki að fara í þá sálma aftur - en ég var ekki dónaleg, aðeins MJÖG ákveðin. Og það virkaði líka ágætlega, fengum nýja vél seinnipart sama dags. Sorry en ég er bara ekki sátt við þegar okkur er selt rándýrt dót sem ekki endist lengur en einn og hálfann mánuð og eiga svo að bíða eftir viðgerð bara eins lengi og fyrirtækinu hentar - niiii finnst það léleg þjónusta.
Og ég var ljúf sem lamb er ég fór fram á að fá nýjar leggings í stað þeirra sem gat hafði komið á innan 24 klukkustunda frá því barnið hóf notkun. Enda var Erla frænka að afgreiða og vildi allt fyrir mig gera - en ekki hvað.
Later

Ummæli
Eða vonum það allavega
:o)