Fara í aðalinnihald

Ég á stutt eftir...

Frétt á mbl.is - kona sem auglýsti eftir ríkum manni - einn bankamaður svaraði henni um að tilboð hennar væri slappt fyrir hann því hún missir útlitið innan nokkurra ára en verðgildi hans vex með hverju ári. Mér brá aðeins og læt brot úr fréttinni fylgja og þá sjáið þið af hverju:

"Á máli kaupsýslumanna heitir þetta að verðgildi þitt rýrnar en verðgildi mitt vex. Ég skal útskýra þetta nánar: Þú ert 25 ára núna og verður líklega sæmilega heit næstu fimm árin, en þó minna ár frá ári. Svo ferðu virkilega að dofna. Þegar þú verður 35 ára er öllu lokið."

Mér er semsagt allri lokið á næsta ári. Byrja bara að rotna lifandi, skemmtilegt. Eins gott að Baldvin giftist mér ekki vegna útlitsins, þá væri ég í vondum málum - hann myndi þá væntanlega yngja upp fljótlega. Tek það fram að ég held ekki að ég svona rosa Beauty - fannst bara fyndið að 35 ára konur væru ógjaldgengar í heiminum sökum aldurs. En ef maður spáir í það þá endurspegla bæði bíómyndir og tónlistarheimurinn dálítið þessa skoðun.

Það er því ekki seinna vænna en að mennta sig (fer alveg að klára) svo maður fái að lifa áfram.

Oldie

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Iss hann er bara ruglaður. Konur eru eins og gott vín verða bara betri með aldrinum. Eða ég held það allavega, annars drekk ég ekki vín þannig að ég ætti kannski ekki að tjá mig um þetta :O)
Nafnlaus sagði…
Mér fannst þetta einmitt snilldarsvar hjá manninum miðað við þessa hrikalegu auglýsingu hjá konugreyinu

kv. ellen
Lóa Björk sagði…
Já reyndar var þetta góður húmor, fannst hann góður að sættast á kaupleigu he he.
Lóa

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...