KEB var heima í dag, kvefaður og slappur. Missti af Halloween partýinu í gær - var að byrja að vefja hann eins og múmíu með 16 metrum af teygjubindi þegar hann nánast líður útaf - hvítur í framan. Þannig að hann var bara heima í dag, fer í skólann á morgun en ætla að halda honum inni. Er skíthrædd um að ég nái í þessa pest líka þetta árið. Man ekki hvenær ég varð lasin síðast - veit að ég hef ekki lagst í rúmið síðan ég byrjaði í skólanum 2004.
KBB náði sér í frunsu - kom að því, bara spurning um tíma. Ég fæ svona ógeð á vörina öðru hvoru - þakka fyrir að Zovir var fundið upp. Þetta var viðbjóðslega vont hérna áður en það kom á markaðinn.
Veturinn aðeins að minna á sig með kaldara veðri og pínulítið af snjó. KBB var svo ánægð þegar hún sá snjóinn á sunnudagskvöldið - SJÁÐU ALLANN ÞENNAN SNJÓ - mmhhmm náði varla sentimetra og krakkinn alveg að sleppa sér. Hún og Diljá notuðu tækifærið daginn eftir og voru duglegar úti að leika sér. Og áðan þegar KBB kom úr skólanum fór hún út í garð með Ástu vinkonu sinni og þær bjuggu til tvo stóra snjóbolta, þeir voru svo þungir að þær gátu ekki lyft öðrum ofan á hinn til að búa til snjókarl. Svo er svo lítið af snjó að helmingurinn af boltanum var laufblöð - en þær voru alsælar og rennandi blautar, komu kaldar inn og fengu sér SwissMiss til að hlýja kroppinn.
Við Svandís sátum hérna saman í kvöld og náðum að gera sitthvora opnuna í albúm. Átti jafnvel von á fjórum öðrum stelpum en þær komust ekki. Þannig að eins og oft áður sátum við systurnar hér í rólegheitum og höfðum það huggulegt. Hlökkum bara til þegar hinar geta komið líka :o)
Er að lesa bókina Þriðja táknið eftir Yrsu Sigurðardóttur. Það er skyldulesning sagnfræðinemans. MA nemi í sagnfræði er myrtur og líkið finnst í Árnagarði - alger skyldulesning. Sagan er mjög skemmtileg - verst hvað ég gef mér sjaldan tíma til að lesa áður en ég fer að sofa. BH talar aldrei meira en þegar ég er að lesa fyrir svefninn. En þar sem hann er enn í vinnunni þá ætla ég að nota tækifærið og komast áfram í sögunni, fara að klára þetta.
Gnótt

Ummæli