Fara í aðalinnihald

6.október

Klukkan skriðin yfir miðnætti og gaurinn steinsofandi. Afmælisdagurinn opinberlega runninn upp. Best að hypja sig í rúmið til að vakna á undan honum í fyrramálið - hefð fyrir því að vekja afmælisbarnið með afmælissöng og pakka í rúmið. Svo er langur dagur hjá honum á morgun. Fer á námskeið í stuttmyndagerð kl. 10. Ákváðum að leyfa honum að fara á það og leggja þannig grunninn að glæstum kvikmyndagerðarferli drengsins. Það er hans draumur, verða frægur og ríkur kvikmyndagerðamaður í Los Angeles, helst frægur samt það er mikið atriði. Svo eru fimleikar frá kl. 13-15. Afmælisveislan byrjar því ekki fyrr en kl. 16.

Kjartan fékk pening frá félögum sínum í afmælisgjöf á fimmtudaginn var - ég sagði að fínt væri að vera vinkona hans þegar ég færi næst út í búð að versla í matinn, hann væri svo ríkur.
KEB: - Alveg róleg sko, þú ert engin vinkona mín
LBK: - Þú verður að muna hver það er sem eldar ofan í þig :)
KEB: - Ok þú ert alveg vinkona mín, en þú færð engan pening.

þar fór það - vona að ég verði ekki bara týnd og tröllum gefin í ellinni meðan sonurinn meikar það í Ameríku, landinu þar sem draumarnir rætast

Birthday planer

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Til hamingju með drenginn.

ég þorði loksins að commenta eftir að vera laumalesari frábyrjun *blush*

Vonandi verður dagurinn góður hjá ykkur.

kv. ellen frænka
Lóa Björk sagði…
Takk fyrir það - endilega láttu heyra frá þér aftur, finnst voða gaman að fá viðbrögð.
Lóa
Nafnlaus sagði…
Til hamingju með guttan.
Kv Fríða

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...