Fara í aðalinnihald

Ef væri ég söngvari...

Ákvað að byrja daginn á göngutúr eins og í gær - maður bara orðin íþróttafrík. Það er voða gott að ganga um Mosfellsbæinn í góðu veðri - umhverfið er fallegt við sjóinn - Esjan, það toppar hana ekkert. Svo er ég með tónlist í eyrunum - heldur hátt stillt reyndar og verð því að taka úr öðru eyranu þegar ég mæti fólki. Það er nefnilega hefð fyrir því hér í bænum að bjóða fólki góðann daginn eða gott kvöld eftir því sem við á þegar fólk mætist á röltinu. Það er nauðsynlegt að hlusta á tónlist á göngunni - styttir tímann mikið, mér finnst nefnilega ekkert voðalega gaman að fara út að labba en læt mig hafa það. Gallinn við tónlistina er samt sá að mann langar helst að syngja hástöfum með - gaula bara út í eitt, eins fölsk og ég er nú og held aldrei takti heldur. Þannig að þetta er pínu erfitt stundum - ég stilli mig nú samt raula bara svona með í huganum - gæti trúað að varirnar hreyfðust samt stundum og þá er eins og ég sé að tala við sjálfa mig í miklum rökræðum um ýmis málefni.

Svo er badminton í kvöld - já Svandís mín ég man þetta alveg - hún minnir mig alltaf á og skipar mér að mæta sama hvað. Spurning hvort fæturnir á mér verði dauðir um helgina?? Ef ekki þá vona ég að ég haldi út að hreyfa mig aðeins - hver veit kannski læt ég mig hafa það og mæti í líkamsrækt í framhaldinu, væri ssvvvooooo til í það.

Íþróttaálfurinn

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...