Allt orðið skínandi fínt - krakkarnir í vetrarfríi og við ætlum að nota daginn til að spóka okkur í bænum. Í gær voru þau í fríi líka en ekki ég svo þau fengu frí frá mér líka. Kjartan Elvar naut þess að hafa húsið fyrir sig allann daginn og dunda sér en Harpa tók Karlottu í fóstur og hún fékk að vera hjá Diljá, gisti þar og var allann fimmtudaginn með þeim. Svo kom Diljá til okkar og var hér í nótt. Spurning hvort þær vaxi saman vinkonurnar ef þetta heldur svona áfram.
Fór í bíó í gær, sjá sjónvarpsmynd um frönsku stjórnarbyltinguna. Fékk smá sjokk þegar ég vissi að þetta tæki 3 klukkutíma, ég með sjálfala börn heima. En það reddast nú allt því þau eru ekki beint smábörn. Myndin var fín en stikklaði á ansi stóru samt - hefði getað verð 20 klukkutímar mín vegna, þá hefði þessu öllu saman verið gerð betur skil, en þetta var fínt. Mikið var ég fegin að myndin var sýnd í Háskólabíó í bíósal - hefði drepist ef ég hefði þurft að sitja í skólastofu á ömurlegum stólum í 3 tíma. Myndin var ekki búin fyrr en rúmlega sex og þá hringdi ég heim og bað KEB um að kveikja undir kartöflum svo við gætum borðað á skikkanlegum tíma. Svona er nú fínt að eiga stóran strák sem reddar manni. Sami strákur hjálpaði mér í morgun og ryksugaði allt saman á meðan ég þurrkaði af, nice - flýtir mikið fyrir.
Farin út í góða veðrið

Ummæli