Ég er einstæð móðir tveggja eingetinna barna og á eitt ættleitt. Þessu hef ég oft haldið fram og rökstutt á ýmsan hátt. Núna t.d. get ég sagt frá því að ég keyrði þennan ættleidda út á flugvöll því hann var að fara til Belgíu. OK, hann komst að því er hann tók töskurnar sínar út úr bílnum að hann var ekki með veskið sitt með sér - engin kort og engan pening. Finnst ykkur skrýtið þó ég tapi mér stundum hérna á þessa kjána, og þessi elsti sem á að geta séð um sig sjálfur er eiginlega verstur!!! Heppinn var hann að Davíð fór með honum í þetta sinn - svo nú verður kortið hans misnotað í ferðinni.
Hvað er síminn á geðdeild - best að setja það á ísskápinn ef á þyrfti að halda í framtíðinni
:)
Hvað er síminn á geðdeild - best að setja það á ísskápinn ef á þyrfti að halda í framtíðinni
:)
Ummæli
"ein sem skilur"