Fara í aðalinnihald

Lág dánartíðni - frábærar ljósmæður

Öll börn verða fyrir smásúrefnisminnkun í blóðinu við það að fæðast vegna þess að þetta er mjög erfið stund, þessar mínútur sem fæðingin tekur. Fóstrin eru bara svo vel undir þessa miklu raun búin, þau þola það og verða ekki fyrir neinum skaða. En ef einhver truflun verður, t.d. ef naflastrengur klemmist utan um hálsinn eða strengurinn fellur fram, þá er voðinn vís takist ekki að ná þeim fljótt út. Þetta getur gerst alls staðar þegar um er að ræða erfiðar fæðingar. Það er ekki alltaf hægt að sjá það fyrirfram og þess vegna kemur fyrir að þau verða fyrir það mikilli súrefnisröskun að þau hljóta af því skaða.

Tók þetta úr mbl.is í dag, varð hugsað til Lottu minnar. Naflastrengurinn var tvívafinn um hálsinn á henni er hún kom í heiminn. Það vissi ég reyndar ekki fyrr en tveimur tímum eftir að hún fæddist og kom niður af vökudeild (enda fyrirburi eins og bróðir hennar). Snillingarnir ljósmæðurnar sem tóku á móti henni vissu nákvæmlega hvað klukkan sló og björguðu krílinu mínu. Eftir á að hyggja man ég að önnur þeirra var með fingurinn þannig að hún hélt naflastrengum aðeins frá hálsinum hennar - hvernig? You do the math. Ég var með tvær ljósmæður í þessari fæðingu. Önnur var íslensk, en hin var pólskur nemi á Íslandi - fullnuma ljósmóðir frá sínu heimalandi samt og engin smástelpa. Ég fæ þeim seint fullþakkað fyrir að vera svona klárar á sínu sviði. Gæti ekki hugsað mér að Skottan mín væri ekki nákvæmlega eins og hún er - lítil dramadrottning með sínar ákveðnu skoðanir og loft í lungunum og ekki hrædd við að nota það til að sannfæra foreldra sína um að hún hafa ALLTAF rétt fyrir sér og fullvissu um eigið ágæti. Dæmi um það er þegar ég spurði hana, sem var skoppandi um öll gólf dansandi ballett, fjögurra ára gamla hvort hún vildi fara í ballettskóla (sem ég var reyndar ekki að spá í for real). Svarið kom um hæl "Nei ég kann þetta allt saman". Þar hafið þið það - hún var fullnuma í ballett fjögurra ára gömul og ekki orð um það meir.
Annað dæmi - í gær sagði hún, þetta er ekki Poweraid mamma, (var með nýtt bragð) jú sagði ég nei, jú, nei, jú - mamman tekur flöskuna og sýnir krílinu að á henni stendur POWERAID, NEI mamma þetta er ekki poweraid. I rest my case.

Ánægða mamman

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Fyrir 27 árum bað ég stelpu um að vera samferða mér heim úr skólanum sú stelpa er samferða mér ennþá í dag, fannst ég aðeins kannast við lýsinguna á ákveðninni .... hugsanlega gengur það í ættir ... er hagggi. kv Fríða
Lóa Björk sagði…
ha ha ha ha - já kannski þetta sé ættgeng þvermóðska, það skyldi þó aldrei vera!
Við erum alla vega ennþá samferða :)
Lóa

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...