Við mæðgurnar ætlum að vera flottar á því næstu helgi. Við ætlum að fljúga í snjóinn á Akureyri, gista á Hótel KEA og fara í leikhús á laugardagskvöldið. Allt í boði dótturinnar sem vann þessa ferð í vinning á síðasta jólabingói í Lágafellsskóla. Litla sem hún var spæld að jólabingó þessa árs verður á sunnudaginn og við getum ekki tekið þátt. Hún hefur sennilega ætlað að vinna aftur. Það er um að gera að drífa sig því vinningurinn fer að renna út. Við ætluðum öll fjölskyldan að skella okkur norður í apríl s.l. En það hentaði ekki vegna þess að við vorum að flytja fyrirtækið þá. Svo bara líður tíminn og maður gerir ekkert.
Við ætlum að sjá Músagildruna hjá leikfélagi Akureyrar. Hlakkar ekkert smá til að pæjast þarna fyrir norðan með litlu drottningunni. Taka með sér hlýju fötin og leika sér í snjónum. Fara út að borða saman og skoða bæinn. Hmm, veit lítið um Akureyri - einhver með góðar (ódýrar) hugmyndir að skemmtun fyrir okkur mæðgurnar?
O&O

Ummæli