Fara í aðalinnihald

Smá hlé...

Alveg komin með nóg. Ákvað í febrúar 2012 að prjóna slá fyrir okkur mæðgur. voða fína. Mynstrið er ekki skemmtilegt því það er svo mikil óregla og maður sér ekki endilega í hvelli hvort maður er að gera vitleysu, ef maður gerir eins slíka. Svo ég er dáldið lengi að prjóna hvern hring. Eeen ég tek prjónana líka upp mjög sjaldan. Því ég prjóna helst við sjónvarpið og það verður bara að segjast eins og er að ég horfi lítið á sjónvarp. Við erum oftast upptekin á kvöldin í öðru. Erum dugleg að hreyfa hundana okkar þá. Og ef ekki þá finnum við okkur annað að dunda í.

Hef tekið prjónana upp undanfarið aðeins... þ.e. nú í vor, er enn að reyna að klára þetta mynstur og er orðin nokkuð lagin við að sjá út hvort ég sé ekki örugglega á pari við uppskriftina. Hljómar eins og ég sé alltaf í ruglinu, það er nú ekki svo - bara hægprjónað og ég tek prjónana sjaldan upp. Þetta er orðið leiðinlegt verkefni, loks þegar sér fyrir endan á því og lykkjunum farið að fækka mikið á hringnum þá gafst ég upp.

Það er komið nýtt blað og ég fór og keypti mér það og lopa í nýja uppskrift. Ákvað að taka mér smá hlé og byrja á verki sem tekur ekki mikinn tíma og ég sé fram á að klára fljótlega. Það er nauðsynlegt til að koma sér að stað aftur og klára slánna. Svo bíður mín lopi í peysu á sjálfa mig. Vil eiga eina svona þrönga létta lopapeysu til að vera í undir útifötunum á veturna... og á skíðunum í byrjun næsta árs. Já já við mæðgur látum ekki stoppa okkur héðan af... við erum háðar brekkunum í Ölpunum.

Litla verkefnið mitt er hafið... hér sést það sem ég dreif á prjónana í kvöld og hlakka til að KLÁRA í náinni framtíð :)

Later

Ummæli

Áslaug sagði…
jæja. myndbirtingar gera kröfu um að verkið sé klárað ;)
annars er barasta komið að prjónaklúbbshitting, við vinkonurnar :)
Lóa Björk sagði…
Yikes... ég birt alla vega ekki mynd af slánni neitt - ekki fyrr en hún er búin þá :)

Prjónahittingur hljómar reyndar bara ágætlega :)
Er alveg með móral hérna, var að horfa á Django með fjölskyldunni og prjónaði ekkert yfir tæplega þriggja tíma mynd - og nice að liggja í hrúgu við sjónvarpið :)

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...