Fara í aðalinnihald

Vefst tunga um hurðastaf...

Stundum festist eitthvað í hausnum á manni og er bara þar. Maður segir eða gerir sömu vitleysuna ítrekað þrátt fyrir að vera leiðréttur/hæddur í hvert sinn. Við hjónin eru dáldið sökkerar fyrir Canada Goose úlpum. Dauðlangar, en þær eru aaaaðeins dýrar svo það hefur ekki verið mikið um kaup á slíkum gæða flíkum inn á heimilið.

Ég hins vegar er alveg búin að bíta það í mig, og segi án þess að taka eftir neinu, að mongoose úlpurnar séu toppurinn. Og ég tala alltaf um mongoose úlpur í stað Canada goose. BH gerir stólpagrín að mér í hvert einasta sinn - spyr hvort ég sé að fara að hjóla og talar um hjólaúlpurnar mínar og svona alls konar. Tekur mig alltaf smá tíma að fatta af hverju hann fer að tala um hjól þegar ég tala um úlpu :)

BH var svo yndislegur að rífa línuskautana mína í sundur í vikunni og smyrja öll hjólin. Síðast þegar ég fór (í hellirigningu) snerust hjólin varla eftir síðustu rigningartúra. Nú er ég hætt að fara á skautana þegar rignir. Það fer verulega illa með þá. Það var þannig að það snerist varla hjól á vinstri skautanum. Ekkert hægt að ýta sér að viti, eins gott að hafa góðan hund sem dró mann í það skiptið.

Anyways þar sem eiginmaðurinn stóð hér úti á stétt og græjaði skautana mína þá sá hann að alla vega eitt hjólið er svo gott sem ónýtt. Ég tjáði honum að í þessa tegund skauta væri alveg hægt að fá varahluti og sennilega hægt að kaupa nýtt dekk í Útilíf til dæmis. Svo fór ég að hugsa að kannski væri það bara ekkert hægt og fór að hugsa aðeins upphátt (röfla um varahluti) sagði að sennilega væri bara hægt að kaupa varahluti á youtube og fá sent heim.

Já Lóa, þú bara kaupir þér varahluti í skautana á youtube!

Ég reyndar fattaði strax ruglið í mér og fór að hlæja áður en hann gat gert grín að mér... og sagði að ég myndi bara youtuba þetta í mongoose úlpunni minni fínu :)

Prófaði skautana eftir að búið var að smyrja þá og þeir renna svona líka rosalega fínt núna :) Set örugglega myndband á youtube fljótlega til að sýna heiminum hvað ég er orðin klár... bara um leið og ég get verið í mongoose úlpunni minni og skautað.

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...