Það haustaði heldur betur snemma þetta vor. Þetta er ekki fyndinn brandari lengur. Þetta er staðreynd. Þrátt fyrir óþol mitt fyrir væli í meðal Íslendingi yfir veðrinu þá verð ég að segja að ég vona að sólardagarnir í sumar verði aðeins fleiri hérna megin á landinu.
Hins vegar held ég áfram að láta veðrið ekki stoppa mig í að vera úti og leika mér. Fannst t.d. skemmtilegt, þegar ég var úti að hlaupa með BH og voffunum, að sjá móður með barninu sínu úti að hjóla. Þau höfðu lagt hjólunum sínum og sett nesti sitt á þar til gert borð og fengið sér að borða. Ekkert að láta sólarleysi og smá rigningu stoppa sig. Trén sáu til þess að veita þeim skjól fyrir veðri og vindum og þau voru sátt :)
Munið að :
“Some people feel the rain. Others just get wet.”
— Roger Miller.
Later

Ummæli