Karlotta undirbýr sig fyrir Lichtenstein ferðina sína... gengur bara fínt og allt komið í hús held ég sem á að fylgja henni yfir hafið. Þau eru mjög spennt krakkarnir. Það getur fátt komið í veg fyrir að þau eigi eftir að skapa ógleymanlegar minningar og skemmta sér konunglega.
BH undirbýr sig andlega fyrir að fljúga yfir hafið ásamt Gumma granna. Þeir yfirgefa landið á sunnudaginn og BH kemur aftur á fimmtudaginn.
Ég sá fram á rólegheit hjá okkur mæðginum og loðboltum í nokkra daga. Drengurinn ekki jafn spenntur greinilega. Kom heim af frjáls íþrótta æfingu áðan og sagði að strákarnir vildu fá hann með á mót á Akureyri - ætla að nota hann í boðhlaupinu. Hann er bara svona að mæta á meðan fimleikarnir eru í fríi. Ekki á drottningin mín eftir að vera ánægð með þessar fréttir - hún er ansi þreytt á að vera þekkt sem "systir hans Kjartans" í frjálsum og einnig í skólanum.
Þannig að systkinin yfirgefa kotið á föstudaginn, annað heldur fyrr en hitt. Svo við hjónin eigum laugardaginn frjáls og óháð börnum... loðboltarnir eiga okkur enn samt.
Svo stingur eiginmaðurinn af á sunnudagsmorgun og þá er minns ALEIN á meðan. Verður fróðlegt að sjá hvort sonurinn láti sjá sig aftur seint á sunnudag eða framlengir fram í vikuna og heimsækir Anítu sína bara lengur en eina helgi.
Þetta verður alla vega rólegt hjá mér á sunnudaginn og fram í næstu viku - vona bara að sólin sjái um að gleðja okkur hérna á suðvesturhorninu og þá verð ég bara góð á pallinum.
Later

Ummæli