Fara í aðalinnihald

Drullutúr

Karlottu langaði að hitta vini sína á Úlfljótsvatni og dekurdýrið sem hún er fékk auðvitað skutl þangað seinnipartinn. Ég ætlaði bara að hlaupa þarna í kring með hundana og svona á meðan og kippa henni svo aftur með mér heim.

BH ákvað að koma með og við ákváðum að hjóla, hann búinn að þefa uppi einhvern slóða fyrir okkur til að fara eftir.

Í stuttu máli er þetta einn fáránlega skemmtilegasti hjólatúr sem við höfum nokkurn tíma farið. Og hafa þeir verið nokkrir.

Í HELLIDEMBU með hunda í góðu stuði, grófan veg sem breyttist stundum í hálfgerða mýri með mjúku undirlagi og pollum á stærð við stöðuvatn, hjóluðum við á 20 - 30 km hraða. Ég fór nú ekki hraðar en um 20 km en BH var langt á undan mér allann tímann og beið reglulega til að vera viss um að ég hefði ekki drukknað einhvers staðar. Hann var heppinn að halda sér á hjólinu, kófsveittur í allt of mikið af fötum miðað við lætin.

Venjulega er honum svo kalt  því hann þarf ekki að gera neitt nema sitja á hjólinum og stýra. Ég hins vegar klæði mig aldrei mikið því ég fæ að hjóla með Ronju minni. Í þetta sinn sá litla drottningin um að hlaupa eins og köttur (husky) og dró mig eins og henni þætti þetta ekkert mál.

Shit hvað hefði verið gaman að vera með GoPro vél á hausnum þarna - þetta var svo gaman.

Það er þannig í svona ferðum að maður hefur of mikið að gera alltaf til að smella af myndum - reyndi samt að taka nokkrar í þetta sinn - en þær eru yfirleitt allar í upphafi ferðar á meðan allir taka sig til og svo í lokin þegar allir koma sáttir tilbaka.



Hér er ein sem gefur hugmynd um hluta af leiðinni - BH og rakkarnir eru of langt í burtu til að þeir sjáist mikið - ekkert hægt að zooma inn á þessum símum neitt !

 Þetta var auðveldi hluti leiðarinnar.

Þegar við komum svo loks tilbaka eftir ævintýrið þá litu fötin okkar svona út


Það var ekki þurr þráður á okkur eftir lætin - en skeljarnar héldu okkur þokkalega þurrum sjálfum, og þrátt fyrir að hafa orðið blaut í fæturna fundum við ekki fyrir því. Ullarsokkarnir klikka ekki - okkur var ekki kalt í eina sekúndu. Það margborgar sig að vera almennilega klæddur í réttum fatnaði... góðum fatnaði sem virkar.

Það er kannski óþarfi að taka það fram en allar yfirhafnir okkar fóru beint í þvottavélina er heim var komið.



Ummæli

Áslaug sagði…
Geggjað. Þetta kallar maður alvöru drullumall.
Lóa Björk sagði…
já þetta var skemmtilegt - maður lætur ekki sumarveðrið stoppa sig... maður fer bara í gallann og gerir það sem maður ætlar :)

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...