Fara í aðalinnihald

Yfir hafið og heim...

Karlotta á leið í Keflavík í þessum skrifuðum orðum. Nítján hressir skátar úr Mosverjum og Ægisbúum fljúga til Kaupmannahafnar núna um klukkan átta og þaðan til Zurich í Sviss og trítla yfir til Lichtenstein. Þar eiga þau eftir að skemmta sér súper vel ásamt öðrum skátum.

Hér eru þær þrjár saman vinkonurnar, Andrea, Diljá og Karlotta. Ég vek athygli á því að við mæðgur erum í alvöru svona hressar á morgnana. Ferskar og til í daginn. Það vantar Birtu á myndina, hún var ekki komin fyrr en allir voru sestir inn í rútu.

Svo er hér þessi fína Hópmynd - allir nema Birta, smá misskilningur með tímann og mætingu.

Vona að þau fái gott veður og ég veit að þau verða til fyrirmyndar þessar elskur. Það er búið að bíða eftir þessari ferð síðan í janúar, eða fyrr. Og þá var ekki einu sinni komið á hreint hvort þau færu eða ekki.

Þetta er fínn undirbúningur fyrir Jamboree í Japan 2015 - það er heimsmót skáta - aaaaðeins fleira fólk sem kemur þangað.

Later


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...