Þeir sem vilja vita hvernig raunverulegt einelti virkar mega koma og vera hér hjá okkur og fylgjast með hvernig goggunarröð hjá hundum virkar.
Í stuttu máli þá fær Leo ekki að drekka úr dallinum eftir matinn nema við pössum að hann fái frið til þess. Á meðan Úlfur og Ronja koma sér makindalega fyrir í stofunni hjá okkur tvífætlingum þá er Leo oft bara frammi og hefur það náðugt þar. Hann fær þá alla vega frið. En hann er stundum snöggur að koma sér fyrir fyrir neðan sófann hjá mér og liggur þar þannig að Úlfur á erfitt með að reka hann í burtu. Þó hann geri það oft... rekur hann burtu og leggst sjálfur hjá mér. En stundum nennir hann því ekki og leggst bara hjá BH í staðinn.
Hins vegar er það svo að stundum er kríli litli bara frammi og kúrir sig - ekkert svo ósáttur, hann er alla vega látinn í friði þar.
En stundum þarf hann að láta vita af sér, kannski af því hann þarf að komast út að pissa, kannski af því hann langar í félagsskap - og kannski bara af því hann er krútt og vill vera viss um að við vitum það :)
Hvernig er ekki hægt að elska þennan hund - eins hyper og kjánalegur og hann getur verið, þá er hann algjört æði. Svo blíður og góður á sinn klunnalega hátt.
Sat við sjónvarpið að prjóna (þori ekki annað en að sitja við og prjóna, verð að pósta stykkinu hér inn fullkláruðu) og leit við. Þá lá hann þarna undir borðstofustól með loppurnar á hundabælinu að kíkja á liðið. Ég gat ekki annað en hlegið, teygt mig í símann og smellt af - maður verður að geyma svona augnablik :)
Later

Ummæli