Við fjölskyldan skelltum okkur í bæjarferð í dag. Tilgangurinn var að vera túristar í Miðbænum. Það tókst nú kannski ekkert súper vel - við bara svona röltum um göturnar og skoðuðum lífið. Það var fínt að nota rigninguna í þetta. Við fórum vel vopnuð góðum fatnaði og litum út eins og alvöru ferðamenn... með bakpoka og allt.
Gerðum grín að því að við gætum bara talað frjálslega íslensku svona eins og í útlöndunum því það myndi enginn skilja okkur.
Fyndnast fannst mér þegar við stigum út úr bílnum á bílastæðinu hjá Lækjartorgi. Þá segir KEB "ég fer að verða dáldið þreyttur - ég ætlaði að taka ofnæmistöflu en tók óvart svefntöflu!" Ég horfði á snillinginn son minn og fór að skellihlæja. Hann tók melatónin í vetur ef hann átti erfitt með að sofna og á enn töflur. Spurning um að mamman fari að skammta liðinu lyfin sín hérna :)
Á þessu rölti okkar stendur tvennt upp úr - KEB talaði stanslaust um að koma við í bakaríi og redda köku, fara heim og græja súkkulaði með rjóma... því hafði verið lofað. Var eina ástæðan skilst mér fyrir því að hann lét draga sig með í þessa menningarferð. Og KBB varð yfirhöfn ríkari - rosa fín í Volcano Vendingnum sínum nýja :)
Við rétt náðum inn í Kornið bakarí á Lækjagötu áður en lokað var á nefið á okkur. Keyptum okkur smávegis með kaffinu (kvöldmatinn). Drifum okkur heim og græjuðum þennan fína kvöldverð með overdose af sykri og rjóma.
Það er nú þannig í svona veðri að það verða allir dasaðir og þreyttir - svo það mætti halda núna að við höfum öll tekið eina melatonin - allir afslappaðir í sínu horni í rólegheitum :)
Later

Ummæli