Fara í aðalinnihald

Sunnudagur til hvíldar...

Við fjölskyldan vorum dugleg í gær, nóg að gera á sunnudegi. Eftir að hafa sofið aðeins frameftir, eins og oft á áður, drifum við okkur aftur að Bláfjöllum. KBB kom með okkur og við fórum í göngutúr með hundana. Jökull og Keano komu með okkur. Zizou og Kristín urðu eftir heima því Zizou var veik. Aumingja Keano saknaði hennar aðeins fyrstu mínúturnar og Ronja og Úlfur notfærðu sér að hann var einn á móti tveimur. En það jafnaði sig hratt og þau hlupu þarna um út allt. Töluvert aðrir litir þarna í gær en fyrradag. Allt orðið hvítt og nú voru engin fjórhjól. En umferðin uppá vegi var mikil því það var opið í Bláfjöllum og fólk greinilega að notfæra sér það til að skella sér á skíði.

Er við komum heim var hundunum skellt út í garð og KEB sóttur. Fórum svo í heimsókn til afa Kalda og Langömmu Lilju. Orðið töluvert langt síðan við drifum okkur á Sléttuveginn. En það var vel tekið á móti okkur eins og alltaf áður. Pönnsur með sultu og rjóma og fínerí - er að spá í að fara aftur í dag kannski... :o)

Er heimsókninni lauk keyrðum við KEB í Breiðholtið þar sem hann ætlaði að hitta vini sína í sundlauginni. En við þrjú drifum okkur í Laugardalinn til að fara á skauta. SBK kom og hitti okkur þar. Það er voða gaman á skautum. En ég myndi vilja eiga mína eigin skauta - djö... er vont að vera í þessum láns skautum. Eftir korter hugsaði ég ekki um annað en fæturna á mér. En þetta gekk nú ágætlega, ekki erfitt að skauta í hringi. Í minningunni var nú skemmtilegra að fara á skauta á tjörninni í gamla daga. Aðeins meira pláss og ekki eins troðið af fólki. SBK og BH voru eitthvað að tuða um jafnvægi og varlega - mér fannst þetta ekkert mál. Enda var það ég sem flaug fram fyrir mig. Lenti illa á vinstra hnénu og flatmagaði á svellinu. Já já - gera þetta með stæl eða sleppa því.

Spurði BH hvort við ættum ekki að prófa að hann henti mér í loftið, ég myndi snúa mér í hringi og hann svo grípa mig aftur. Þetta lítur ekki út fyrir að vera erfitt þegar maður horfir á vetrarólympíuleikana. Hann hugsaði sig ekki einu sinni um - sagði bara NEI. Og þar með var það útrætt. Er við sátum í stúkunni og sötruðum heitt kakó sagði ég SBK hvað hann væri leiðinlegur og hefði ekki viljað prófa. þá sagði hann "Það var bara af því þú varst á svo lélegum skautum". Næst ætla ég að vera á súper góðum skautum og þá prófum við þetta - engin spurning.

Skemmtilegast þarna var sennilega að fylgjast með guttunum á hokkískautum spænandi þarna um allt. Það var nú ekkert þægilegt þegar þeir þutu þarna framhjá fólki - áttu heiminn klárlega. Sá þá nokkrum sinnum tæta í átt að veggjunum og skrensa svo hálfan metra frá. Algjörir töffarar - greinilega að æfa hokkí :o)

Komum heim í draslið og svona - mamman gaf sér engan tíma til að gera allt fínt hérna eins og til stóð fyrir helgina. En rykið fer ekkert svo það bíður betri tíma :o)

Later

Ummæli

Nafnlaus sagði…
hahahaha flatmaga á svellinu :O)
Fór einmitt á skauta fyrir nokkrum árum og ég er nokkuð viss um að ég hafi endað á að skríða út af svellinu

kv. Sonja
Lóa Björk sagði…
ég er að fá þennan fallega marblett á hnéð núna - eins gott því ég ætla sko að mjólka smá vorkun út á þetta ;o)

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...