Fara í aðalinnihald

Voff

Eitthvað er hvolpurinn að venjast lífinu hérna á heimilinu. Stækkar á ljóshraða og lærir mjög hratt líka. Mjög ákveðin einstaklingur og skemmtileg - svona þegar hún er ekki að gera útaf við mig á þrjóskunni.

Ég ryksuga ansi oft núna - gerði það reyndar áður líka. Þoli ekki grasið og draslið sem berst inn með okkur á sumrin er við vöðum inn og út af pallinum í góða veðrinu á sumrin. Ronja fer meira úr hárum núna en í fyrstu, en það er nú bara eins og við var að búast. Hlökkum ekki til fyrstu feldskiptanna - það verður sjokk :o) BH ætlar að smíða gerði hérna úti í garði í vikunni og svo hún ætti að geta verið mikið úti. Henni finnst svo gott að vera úti - því meiri læti sem eru í veðrinu því betra. Það er frábært að sjá hana taka vindáttina - rekur trýnið og andlitið upp í vindinn og sogar að sér loftið.

Þetta með ryksuguna - já einmitt - það var víst þess vegna sem ég er að skrifa þetta. Í fyrsta sinn í dag þá eltir hún ekki barkann út um allt og reynir að "veiða" hann. Mín orðin vön þessu og bara rölti í rólegheitum frá - svona til að vera ekki fyrir er hávaðaseggurinn kom að hennar svæði.

Við BH fórum með hana út í gærkvöldi og gengum lítinn hring. BH hélt í tauminn og reyndi að kenna henni að ganga við hæl. Það gekk ágætlega og hún var svona aðeins að ná þessu. Í morgun fór ég svo aftur lítinn hring og gerði það sama og hún svona ljómandi dugleg. Ekkert búin að ná þessu bara í hvelli, en þetta kemur hratt. Það má geta þess að hún fékk óspart verðlaun fyrir að vera dugleg. Spurning hvernig þetta kemur til með að ganga þegar verðlaunum fækkar, vona að þá verði hún búin að uppgötva alveg til hvers er ætlast af henni.

Hæl

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Já Týri minn var alveg brjálaður í Kústinn þegar ég var að sópa í hesthúsinu, reyndar var Kátur til líka þá og þeir ættluðu svoleiðis að stoppa þennan kúst, það var bara fyndið, en ég vandi þá fljót af þessari vitleysu.
Flottar myndir af Ronju, hún er svo mikið krútt...
Lóa Björk sagði…
Takk fyrir - hún er einmitt brjáluð í moppuna - held hún eigi eftir að brjálast á hana þegar ég nota hana næst, nota hana sjaldnar en ryksuguna :o)

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...