KBB búin að kvarta undanfarinn mánuð um verk í hægra hnénu. Hef svona nett verið að ignora hana með þetta. Sagði henni að þetta væru bara vaxtaverkir, hún stækkar svo hratt. Um daginn hvæsti hún á mig að þetta væru sko engir vaxtaverkir - það er ekkert bara hnéð sem vex!
Í gær er hún var að fara að sofa sýndi hún mér hnéð og ég skoðaði bæði hnén. Hægra hnéð var greinilega stokkbólgið - hún hefur ekkert dottið eða orðið fyrir neinu hnjaski.
Hún átti tíma hjá lækni áðan - rétt náði að koma mér heim úr bænum og ná í stelpuna og koma á réttum tíma. Vörtudruslan á þumlinum hefur bara stækkað og því þarf að frysta og svo koma aftur eftir tvær vikur og frysta. KBB til mikillar gleði - NOT. Við spurðum lækninn út í hnéð, hann rétt leit á bólguna og sagði - "dæmigerðir vaxtaverkir" he he - mamman ekki svo vitlaus eftir allt saman.
Hann ráðlagði bólgueyðandi krem og teygjusokk um hnéð að staðaldri. En fimleikarnir? Ekkert svona hopp og álag, það er slæmt. Þannig að KBB er brjáluð - vill alls ekki hætta í fimleikum og langar ekkert aftur í svona vörtufrost.
Talaði við BH sem vildi nú fá annað álit og þá kannski frá bæklunarlækni - verð að vera sammála því og ætla því að panta tíma hjá einum slíkum, svona áður en ég læt hana hætta í fimleikum. Samkvæmt heilsugæslulækninum er þessi bólga í hnénu ekkert að fara neitt - ekki fyrr en bara kynþroska er náð og þá vonandi fer verkurinn og bólgan. Annars er ekkert hægt að gera neitt gáfulegt til að koma í veg fyrir þetta.
Verð að láta fylgja samtal síðan í gær er við KBB keyrðum í bæinn. Hún biður mig oft að koma með orð og hún þýðir þau á ensku. Ef hún veit ekki þýðinguna þá kemur íslenska orðið oft aftur bara með TEXAS hreimnum, betra en að segja ekki neitt :o)
Eitt orðið var BENSÍN - hún var ekki með það alveg á hreinu en ákvað að redda sér og svaraði CARFOOD.
stórustelpumamman!

Ummæli