Fara í aðalinnihald

Hættulegt starf!

Fór í vinnuna til BH og DH áðan með mat til þeirra. Var líka beðin um að skrúbba aðeins í kringum innganginn og þrífa mottuna sem sneri á röngunni á gólfinu. Það nefnilega rignir inn í ákveðinni vindátt og allt verður svona frekar blautt.

Eftir að hafa borðað með þeim sneri ég mér að verkefninu "útihurð" og á meðan ég brölti þarna fram og tilbaka með tusku í annarri og moppu í hinni fékk ég að heyra "Þú ert svo mikil drusla". Ég gat mér til um hvað væri málið og spurði hvort ég ætti að setja sígarettu í munnvikið. Jú hann taldi að það vantaði bara.

Ég mætti þarna í íþróttagallanum - sem mér finnst reyndar ekki bara þægilegur heldur líka bara flottur og haltraði um gólfin. Ég nefnilega missteig mig í morgun svona glæsilega. Féll á hnéð í leiðinni og þetta var hrikalega vont. Jafnaði mig fljótlega en er greinilega bólgin og aum því það er vont að stíga í fótinn núna. BH fannst ég sem sagt ekki mjög tignarleg í morgun - haltrandi með gólftuskuna!

Ég missteig mig í gær líka - á hinum fætinum, nei ég er ekki að grínast. Þetta gerðist ekki á sama stað í bæði skiptin. Í gær datt ég nú ekki og þetta jafnaði sig þá betur strax og ekki hef ég verið haltrandi eftir það skiptið. En nú er ég sannfærð um að útburðarstarfið er risky business og finnst að fólk ætti að fá áhættuþóknun inn í laun sín.

Later

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Heyrðu farðu nú að standa í fæturnar og vertu óhölt í næsta badmintontíma ;)
Nafnlaus sagði…
aha ég hef kannski smitað þig af seinheppni síðast þegar ég hitti þig. Þú mátt eiga hana ;).
Nafnlaus sagði…
Again. Þetta var ég Helga hehe.
Lóa Björk sagði…
NEINEINEI - vil ekki sjá þessa óheppni sem er búin að elta þig á röndum, ekki senda hana á mig - hélt við værum vinkonur :o)

Og já minns ætlar að baka þessa karla í næsta badmintontíma!

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...