Var að aðstoða dóttur mína með hluta af heimavinnunni hennar. Það er svo lítil heimavinna fyrir vikuna að hún klára hana á 30 mínútum. En við vorum að gera svona smá aukaverkefni. Einhver uppbyggingastefna í gangi í skólanum og foreldrar beðnir um að ræða við börnin um hlutverk foreldra og barna á heimilum. Krakkarnir eru svo búnir undanfarið að ræða við kennarann sinn um hlutverk nemenda og kennara í skólum.
Allt í einu segir hún "æ já - það kemur svona gígomegalist einhver fyrir ávaxtabitanum" Þau fá ávaxtabita í áskrift sem nesti í skólanum ef fólk velur það fyrir börn sín. Ég brosti og spurði, "meinarðu til að borga?" já einmitt það var ástæðan. Getur kannski verið að kennarinn hafi sagt GÍRÓSEÐILL? Já einmitt - það var það sem hún sagði - mamma hættu að hlæja - EKKI SKRIFA ÞETTA NIÐUR! Vonda mamma - skrifaði þetta á blaðið sem við vorum að skrifa á hlutverkin til að muna þetta ágæta orð.
Í gær hittum við BH fólkið sem við umgengumst svo mikið sem unglingar. Holtavegsgengið eins og við köllum okkur gjarnan. Vorum 11 stk sem hittumst ásamt tveimur af foringjunum sem voru mest með okkur þennan tíma. Það vantaði bara tvo af þeim sem hefðu annars getað komið og svo er einn til í USA í skóla. Fékk að vita bloggið hans hjá systurinni þannig að ég bætti honum inn hjá mér og ætla að fylgjas með fjölskyldunni hans og ævintýrum þeirra í USA næstu árin :o)
Þetta var snilld, þau streymdu hér inn frá kl. 20 til 23 og allir duttu inn í sín hlutverk síðan á unglingsárum. Þetta var eins og enginn tími hefði liðið síðan við hittumst vikulega og oftar á árunum 1986 - 1990. Það var mikið hlegið og mikið rætt um hvað hefur drifið á daga fólks í lífinu undanfarin 20 ár. Flestir komnir með börn og buru, sælir og ánægðir með lífið og tilveruna. Best var að ekki nokkur hafði breyst mikið, allir bara aðeins eldri, og sumir alla vega þroskaðri :o)
Helga kom með nokkrar myndir frá þessum árum og ég dró fram nokkur albúm til að kíkja í. Hefðum betur sleppt því. Við litum svo miklu betur út svona í minningunni - það er hilarious að skoða þessar myndir - omg tískan og hallærið sem var í gangi. Rifjuðum upp atvik sem voru löngu gleymd nema af því þau náðust á filmu - hefðu kannski verið betur geymd bara.
Later

Ummæli
Kveðja,
Elli