Fara í aðalinnihald

Letilífinu lokið

Skóli á eftir - fara með KEB í tannréttingar - lesa og læra. Hætt að hanga yfir bíómyndum allann daginn, hætti því reyndar fyrir helgi. Lét taka sauma áðan á heilsugæslustöðinni, fékk að bíða í hálftíma eftir hjúkrunarfræðingnum. Merkilegt hvað tími manns er einskis virði sums staðar. BH ætlaði að taka saumana fyrir mig en það klikkaði hjá okkur svo ég dreif mig bara og borgaði 1000 kall fyrir það. Hefði þurft að borga 2000 á spítalanum þannig að ég græddi smá, það fer upp í lesheftið sem ég kaupi á eftir fyrir skólann.

Sat og beið eftir hjúkkunni og hlustaði á væl í krakkagreyi inn á einhverri læknastofunni. Móðureðlið eitthvað kikkaði inn því ég var að því komin að fara og ná í barnið sem kallaði ámátlega á mömmu sína - Svona "bjargaðu mér mamma mín" væl, ég höndla svoleiðis ekki mjög lengi. Veit ekki hvað þeir voru að kvelja krílið og hugsaði að stundum þarf vont til að gera betra, en það var bara ekkert að hjálpa, mig langaði svooo mikið til að ná í barnið og bjarga því frá þessu liði sem var greinilega eitthvað að pota í það.

Heyrði í Sólveigu vinkonu áðan - hún á von á öðru barni í sumar. Ég sé ekkert nema óléttar konur út um allt núna, er það bara ég? Benti BH á þetta er við fórum í bíó um daginn og hann tók eftir þessu líka. Mæli með Brúðgumanum í bíó, við skemmtum okkur ágætlega hjónin yfir þeirri mynd. M.a.s. BH sagði að þetta hefði nú allt sloppið, venjulega er hann með hausverk eftir íslenskar bíómyndir, þær eru svo þungar og drungalegar oft.

Later

Ummæli

Nafnlaus sagði…
ÉG hefði nú getað tekið úr þér saumana með allar græur til þess hér í vinnunni. Bara komið með það til þín. Ekki málið hehe. kv Helga tannpúki
Lóa Björk sagði…
Hí hí - fór nú á heilsugæsluna því mér leist ekki alveg á þetta, var bara einn hnútur og eitthvað - kom í ljós að þeir eyðast sjálfir, en hún tók hnútinn og það sem sást af saumum :o) Man það næst að koma bara til þín!
Lata húsmóðirin sagði…
Úff ég er alveg sammála þér með óléttu konurnar. Við hjúin álpuðumst í leikhús um daginn og ég er ekki að spauga meirihluti kvenfólksins í leikhúsinu var með bumbu óléttu sko ekki bjórbumbu ;O)
Lóa Björk sagði…
Það virðist vera einhver frjósemi í gangi - skyldi það tengjast köldum og frekar snjóþungum vetri eitthvað?

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...