Það var fyrirsögn í Mogganum um daginn um að töluvert fleiri karlmenn eiga bíla en konur. Ég hugsaði með mér að sennilega væri það á fleiri heimilum en mínu þar sem bæði konan og maðurinn eiga bílinn í raun en karlinn er skráður eigandi. Skiptir engu máli hvaða nafn er í skráningarskírteininu, eignin er okkar beggja. þannig lít ég á það og spáði ekki meira í þetta.
Áðan þurfti BH að taka Jeppann, bílinn minn, þannig að ég fékk náðarsamlegast lykilinn af Renault tíkinni hans. Mér var tilkynnt að hann sæi það nú alveg ef ég keyrði hraðar en 60 km/klst á þessum gula. Þetta er gamalt grín í fjölskyldunni, afi sagði þetta við pabba minn er hann fékk eitt sinn volvo lánaðan hjá móðurafa mínum. Afi var mjög passasamur á bílana sína og þeir voru alltaf eins og nýir hjá honum. Alla vega ég spurði minn mann hvort hann ætlaði að láta það fréttast um sig að hann væri giftur einhverri gamalli ömmu - sem þá keyrði bara á 60 km/klst? Hann taldi 60 bara vera fínan ökuhraða fyrir mig. Jæja ég átti ekki annað ráð en að tjá honum að því miður gæti hann ekki fengið minn bíl lánaðann - ég þyrfti að nota hann sjálf. Tek ekki við bílum með skilyrðum um hámarkshraða :o)
Aldeilis sem ég réði ferðinni núna mar. Næsta sem ég veit er að dynur á mér spurningin - "Eigum við að kíkja í skráningarskirteinið og sjá hvaða nafn er þar skráð sem eigandi?" HMMM ég er ekki alveg sátt við þetta, næsti bíll verður á mínu nafni það er engin spurning.
SuperWoman

Ummæli
Skráðu hann á þig kona ;-)