Fara í aðalinnihald

Ekki er allt sem sýnist

Tel mig vera nokkuð fordómalausa - veit samt betur innst inni. Það er erfitt að losna alveg við þennan leiða kvilla sem virðist fylgja öllu fólki að einhverju leyti. Stundum veit maður ekki um eigin fordóma fyrr en maður stendur frammi fyrir þeim.

Var í Krónunni í dag, búin í skólanum og kom úr vinnunni þar sem ég hafði setið smá stund að prenta greinar fyrir skólann. Klukkan orðin 18 og BH illa haldinn af hungri heima svo ég var að drífa mig í að hlaupa í gegnum búðina svo ég kæmist fyrr heim. Well - kom að kössunum, góð röð við einn þeirra en tveir komu til greina, ekki svo löng röð. Var svona um það bil að koma mér að öðrum þeirra og sé þá að allt er stopp þar, sný mér að hinum og þá komið fólk þar sem ég nennti helst ekki að bíða á eftir. Þá tók ég eftir stelpunum sem stóðu við þessa tvo kassa. Þær voru ekki gamlar, brosmildar og dálítið glannalega til fara. Ég hélt að sú sem afgreiddi á kassanum sem ég stóð við væri í einhverjum vandræðum og gæti því ekki klárað að afgreiða kúnnan sem átti vörurnar sem verið var að pípa í gegn. Nei þá var það víst ekki málið - frúin sem átti vörurnar hafði skroppið aftur inn í búð til að ná í eitthvað og við hin fengum að bíða á meðan.

Aftur að afgreiðsludömunum. Klæðnaður þeirra var frekar neyðarlegur, neonbleikar leggings og þröngar svartar stuttbuxur yfir - bolurinn álíka skræpóttur. Áberandi augnmálning í neonlitum og brjáluð fake augnhár með glimmeri. Hliðartagl sem búið var að vöffla í.

Pólskar - alveg greinilega pólskar, það var mín hugsun. Þær eru nokkrar pólskar í Bónus að afgreiða - fínar stelpur, en ekki svona brjálaðar í fatavali neitt samt. Þetta var ég að hugsa þegar ég heyri aðra þeirra segja GÓÐANN DAGINN, rosalega talar hún fína íslensku. Svo fór allur efi um að þær væru neitt annað en íslenskar, þær fóru að spjalla aðeins saman - svona lýtalausa íslensku tala bara Íslendingar. Hmmm - þurfti að hugsa þetta eitthvað aftur.

ÖSKUDAGURINN - já auðvitað, það er öskudagur og þær voru búnar að klæða sig í grímubúninga - sem svona eighties píur. Ég skammaðist mín dálítið að hafa slegið því föstu að þær hlytu að vera útlendingar fyrst þær væru svona brjálaðar fatavali og áberandi farðaðar.

Later

Ummæli

Nafnlaus sagði…
hehe bara uppfull af fordómum. Fyndið hehe. Annars held ég að þetta blundi i okkur öllum. Ekki spurning.kv Helga
Lata húsmóðirin sagði…
Þú ættir að sjá skvísuna sem er að afgreiða í Bónus hérna hjá mér. Með aflitað hár (mjög líklega heimalitun), með alveg brjálæðislega þykkt meik, ég held að hún taki grímuna af á kvöldin og setji aftur upp næsta dag. Geðveikt þykkan maskara og svo angar hún af reykingarfílu og ilmvatnsfýlu í bland. Jakk. Og hún er svona alla daga, ætli hún hafi ekki mætt ómáluð í vinnuna á öskudag!

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...