Fara í aðalinnihald

Rigning

Kominn tími á að fara að hreyfa sig aftur. Plana gönguferð með hunda í dag... bara svona smá hring og svo engin miskun eftir helgi. Heyri hvað Höskuldur segir á mánudaginn. En miðað við fyrri reynslu af þessum læknum þá vilja þeir allir að ég komi mér út að hreyfa mig sem fyrst og sem mest. Á ekki von á að það sé neitt öðruvísi í þetta sinn.

Ronja er enn stokkbólgin í andlitinu. Vakti mig þriðja morguninn í röð til að komast út til að gera þarfir sínar. Eins gott því þau voru laus í nótt. Hún ældi hérna áðan, ég voða ánægð að hún skyldi hafa verið nógu kurteis til að notast við parketið. Auðvelt að þrífa.

KBB og Mímí komu hérna rétt á eftir og vildu meina að lyktin væri ógeð hérna inni - sérstaklega í stofunni. Þegar ég var búin að átta mig á að lyktin væri mest í stofunni hringdi einhverjum bjöllum í hausnum á mér. Fór að leita og fann fljótlega... búið að skíta á gólfið. Og hinn sami ekki svo kurteis því það er notast við endemis teppið. Sennilega rakkakvikindið því drottningin lætur vita, sbr í morgun og síðustu tvo morgna.

Skulum vona að þau séu hætt að skila af sér á gólfin hérna, ekki viss um að ma og pa verði ánægð á eftir ef þau fara að stunda þetta í bústaðnum :o/

Later

Ummæli

Alexandra sagði…
hahah, litla skitaskrísmlið hann Úlfur... er hann ekki bara að mótmæla einhverju? td að hann hitti ekki bestu vinkonu sína nógu oft(Spörtu)...
Vona að bólgan fari að hjaðna hjá ronjuponsinu :)
kv.Alexandra

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...