Fara í aðalinnihald

Never ending story...

Tannréttingar = Fegrunaraðgerðir? - Stundum örugglega. En stundum nauðsynlegar til að allar tennur séu á sínum stað. Erfitt þegar allar tennur eru komnar upp og ekki er nóg pláss fyrir þær allar. Frekar snúið að geta fátt étið nema helmingurinn sitji eftir fastur á milli tannana.

KBB tók þetta á mettíma. Tannréttingalæknirinn vildi reyndar gjarnan laga þessa einu augntönn sem enn hangir aðeins utar og því ekki í línu við rest. Veskið mig gólaði bara við tilhugsunina og því ákvað ég í einu pirringskastinu þarna niðurfrá að ekki yrði meira gert fyrir dömuna. Fékk það síðar staðfest af tannlækni að teinar og mörghundruðþúsundkrónur væru ekki nauðsynlegar fyrir drottninguna mína. Tennurnar hennar er toppfínar og eiga ekki eftir að valda henni ama í framtíðinni.

Drengurinn hins vegar er búinn að taka aðeins lengri tíma í þetta. Enda með tennur eins og karl faðir hans. Svo það er eins gott að eftir allan þennan tíma og peningaaustur að krakkinn hafi fínar og flottar tennur sem ekki pirra hann í framtíðinni. Í fyrravor var honum lofað að í ágúst 2009 yrði þetta pottþétt búið. Þrátt fyrir það er ekki enn búið að taka teinana úr neðri góm. Teinarnir í efri góm fengu ekki að fjúka fyrr en núna í byrjun sumars. Þvílík gleði hjá einu barni þegar þeim áfanga var náð. Núna telur hann niður dagana þar til í lok ágúst þegar teinarnir verða endanlega teknir úr munninum á honum.

Mamma hans og pabbi telja líka niður. En það eru blendnar tilfinningar í þeirra huga. Gleði því nú lýkur þessu senn og krakkinn getur brosað allan hringinn og borðað eins mikið popp og hann getur í sig látið. En sorg því við verðum sjötíuþúsund krónum fátækari þann daginn. Fékk nefnilega svona skemmtilegt eyðublað - bréf í síðasta tíma. Svona VERÐUR AÐ VERA BÚINN AÐ GERA UPP ALLT SAMAN ÁÐUR EN VIÐ TÖKUM DRASLIÐ ÚR KRAKKANUM bréf. Og ÞAÐ KOSTAR SJÖTÍUÞÚSUND AÐ TAKA DRASLIÐ ÚR KRAKKANUM. Hjúkk að ég skulda þeim ekki krónu fyrir það sem búið er. Og mikið rosalega hlakka ég til að þurfa ALDREI að fara aftur þarna inn og leyfa þeim að róla sér í veskinu mínu.

Þar sem ég beið þarna á biðstofunni síðast, á meðan krakkinn beið í stólnum eftir tannlækninum, (90% af tímanum fer í að bíða eftir honum) þá hlustaði ég á konu tala í símann. Maður kemst ekkert hjá því að heyra það sem fólk er að segja. Hún var verulega pirruð og svekkt. Kannast svo vel við þá tilfinningu þarna. Hún var að tala við einhvern um tannréttingar dóttur sinnar. Tilkynnti viðmælanda sínum hvar hún væri stödd og sagði að hún væri þarna til að láta rífa allt út úr krakkanum. Væri gjörsamlega orðin hundleið á því að fá enginn svör. Krakkinn væri búin að vera þarna í meðferð í sjö ár og ekkert hægt að segja henni um það hvenær þessu yrði eiginlega lokið. Henni var bara allri lokið og þoldi þetta ekki lengur.

Mikið skil ég þessa konu vel. Ég leit á dóttur hennar og hún var ekki gömul. Sjö ár takk fyrir. KEB er búinn að vera þarna í um fimm ár og þessu er að ljúka hjá honum og ég er búin að fá slétt nóg af loðnum svörum og framlengingum. Hún hins vegar var ekki að fá svör um hvenær þessu myndi ljúka hjá þeim.

En þó teinarnir verði teknir í lok ágúst þá er ekki þar með sagt að þessu sé endanlega lokið. Drengurinn er enn með góminn. Vonandi losnar hann við þann grip hið fyrsta. Svo veit ég ekki hvort það sé eitthvað eftirlit í einhvern tíma. En það er ekki kafað eins djúpt í veskið eftir krónum þá.

Ég alla vega mæli með því að fólk hugsi sig vel um áður en fólk drífur sig með krakkann í tannréttingar. Þarf barnið virkilega á því að halda? Ef ekki... þá sleppa því. En ef... fáðu þér aukavinnu.

Later

Ummæli

Nafnlaus sagði…
garg - segðu þetta ekki - Agnari var lofað að þetta yrði búið vorið 2009 og þetta er enn í gangi og ég átti nú ekki von á að það kostaði svona mikið að rífa þetta úr kannski maður láti hann bara taka þetta sjálfan "óvart" úr áður en hann mætir ..... spurning !!!! S.... P .... er ekki alveg sá besti í upplýsingagjöfinni
Lóa Björk sagði…
Það er trúnaðarmál hvernig og hvort og hvenær og hvað það kostar allt saman.

Hvað skyldu þau segja ef maður segði - sorry á ekki fyrir þessu og vil ekki semja um skiptingu greiðslunnar - bara hafa þetta upp í krakkanum þar til hann getur borgað sjálfur?

Ég ætla að fá yfirlit hjá þeim næst þegar ég fer - sjá hversu mikið ég hef í raun borgað !

Og já KEB var svona eiginlega lofað að þetta yrði búið fyrir fermingu!

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...